Fotbolti.net
28.06.26 - 13:48
Brynjar Ingi Erluson

Klopp: Hef ekki hugmynd um hvað fór úrskeiðis hjá Liverpool

Jürgen Klopp

Jürgen Klopp

Canon

Mynd: EPA

Jürgen Klopp, fyrrverandi stjóri Liverpool, segist ekki vita hvað fór úrskeiðis hjá liðinu á síðustu leiktíð en viðurkennir um leið að heppni sé nauðsynleg til að ná árangri.
Klopp hætti með Liverpool sumarið 2024 eftir að hafa stýrt liðinu í tæp níu ár.

Á þeim tíma vann Liverpool ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu, auk fjölda annarra titla.

Arne Slot tók við keflinu af Klopp og gerði liðið að Englandsmeisturum á sínu fyrsta tímabili. Allt hrundi hins vegar á síðustu leiktíð og fór svo að hann var látinn taka pokann sinn. Andoni Iraola tók við af Slot í kjölfarið.

Klopp ræddi við ESPN um síðasta tímabil Liverpool og það sem fór úrskeiðis.

„Ég hef ekki hugmynd. Ég er ekki nógu nálægt þessu til að geta dæmt um það. Ég var í skýjunum þegar þeir unnu deildina árið áður en hef ekki hugmynd um hvað fór úrskeiðis árið á eftir.

„Ég held að enginn hafi verið ánægður með tímabilið. Það var nokkuð augljóst en samt komust þeir í Meistaradeildina og það er frábært afrek. Nú þurfa þeir bara að horfa fram á veginn með nýjan stjóra. Andoni Iraola er frábær þjálfari, rétt eins og Arne Slot, en þetta þarf að smella saman. Þeir þurfa að gera þetta yfir langan tíma og til þess þarf líka heppni,“ sagði Klopp.

Klopp ræddi einnig um andlát Diogo Jota og hvaða áhrif það hafði á hópinn. Jota lést langt fyrir aldur fram eftir hræðilegt bílslys á Spáni, aðeins nokkrum dögum áður en hann átti að mæta aftur til æfinga hjá Liverpool.

„Það kom upp atvik fyrir síðasta tímabil hjá Liverpool sem enginn bjóst við og það er mjög erfitt að eiga við slíka hluti. Ég veit ekki nákvæmlega hvað gekk á en nú er þessari leiktíð lokið og þeir geta horft fram á veginn,“ sagði Klopp ennfremur.
Arne Slot var rekinn eftir aðeins tvö ár í starfi

Arne Slot var rekinn eftir aðeins tvö ár í starfi

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.