Rangnick blæs á samsæriskenningar - „Hefði sagt Hitchcock að hann væri geðveikur“

Mynd: EPA

Austurríkismenn fagna jöfnunarmarkinu hér

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ralf Rangnick, þjálfari austurríska landsliðsins, hefur vísað því alfarið til föðurhúsanna að Austurríki og Alsír hafi gert með sér samkomulag um jafntefli í lokaumferð riðlakeppninnar í nótt.
Báðar þjóðir vissu fyrir leik að jafntefli myndi duga þeim til að komast áfram í 32-liða úrslitin.
Leikurinn var mikið ræddur fyrirfram og talað um að þetta væri leikur sem hvorugt lið vildi vinna. Það lá fyrir að liðið sem tæki annað sætið myndi mæta Spáni í næstu umferð.
Þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum í gær jöfnuðu Austurríkismenn og tryggðu sér þar með sæti í 32-liða úrslitunum, þar sem Spánverjar bíða. Alsír mætir hins vegar Sviss.
Rangnick segir leikmenn beggja liða hafa blásið rækilega á samsæriskenningar um að þjóðirnar hefðu sæst á jafntefli.
„Það er ekki hægt að draga þá ályktun að eitthvað samkomulag hafi verið í gangi þegar leikurinn endar 3-3, sérstaklega miðað við það sem við sáum á síðustu 90 sekúndum leiksins.
„Þegar þrjár mínútur voru eftir og einhver hefði sagt mér að þetta myndi gerast, þá hefði ég sagt viðkomandi að hann væri klikkaður.
„Ég hef verið þjálfari í um 40 ár og man ekki eftir leik sem lauk með jafn miklu drama og jafn óvæntri atburðarás.
„Flestir bjuggust við 0-0 eða 1-1 leik og svo endar hann 3-3. Það er ótrúlegt og allt er á öðrum endanum í búningsklefanum. Ef Alfred Hitchcock hefði skrifað svona drama, þá hefði ég sagt honum að hann væri orðinn geðveikur.
„Allir sem horfðu á síðustu fimmtán mínútur leiksins hljóta að vita að það voru engar vísbendingar um að leikmennirnir vildu gera jafntefli. Ég held að þeir hafi allir viljað vinna leikinn.
„Enginn getur sannfært mig um að einhver hafi allt í einu ákveðið á 93. mínútu að plana annað mark. Kannski var það í huga eins eða tveggja leikmanna Alsír, en það átti ekki við um alla aðra í hópnum og svo sannarlega ekki mig,“ sagði Rangnick.