Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. júlí 2022 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjaldan verið jafn spenntur fyrir Arsenal kaupum
Mynd: Getty Images

Gabriel Jesus hefur farið vel af stað með Arsenal síðan hann gekk til liðs við félagið frá Manchester City í sumar. Hann er með fjögur mörk í fjórum leikjum.


Sæbjörn Steinke er farinn að hita upp fyrir enska boltann með því að fá stuðningsmenn liðana í deildinni í spjall. Frændurnir Albert Hafsteinsson og Lúðvík Gunnarsson mættu til hans til að ræða sína menn í Arsenal.

Albert er mjög ánægður með Jesus og hefur mikla trú á honum fyrir tímabilið.

„Ég er búinn að sjá tvo af síðustu þremur leikjum. Mér líður eins og hann haldi að hann sé ósigrandi, hann er aðalkallinn sem hann var ekki hjá City. Kemur inn cocky, hvernig hann er að klára færin,"  sagði Albert.

„Ég held að þessi kaup séu eins fullkomin og þau verða. Það er langt síðan maður var jafn spenntur fyrir Arsenalkaupum, kannski bara síðast þegar Özil eða Sanchez voru keyptir, bara alvöru súperstjarna. Ég held að þetta verði eitt af kaupum ársins."

Arsenal hefur leik í ensku úrvalsdeildinni á föstudaginn eftir viku þegar liðið mætir Crystal Palace á Selhurst Park.


Enski boltinn - Arsenal upphitun með Skagafrændum
Athugasemdir
banner
banner
banner