Fotbolti.net
28.08.20 - 22:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hemmi ánægður með allt í Vogunum: Mikill liðsandi hjá okkur

Auglýsing
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Þróttar Vogum.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Þróttar Vogum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrrum landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson hefur gert frábæra hluti frá því hann tók við Þrótti Vogum í 2. deildinni. Hans fyrsta tap með liðið kom á Ásvöllum í kvöld í skemmtilegum nágrannaslag gegn Haukum.

Þrjú rauð spjöld, þar af tvö á Þrótt, fóru á loft í dramatískum sigri Hauka.
„Ég er hundsvekktur að hafa tapað þessu, þetta hefði getað farið í báðar áttir. Við ætluðum að spila okkar leik og sækja hratt upp kantana. Það sló okkur út af laginu að hann var kolrangstæður í fyrsta markinu og það er svekkjandi."

„Það tók okkur smá tíma í að vinna leikinn eftir það, en eftir að við stigum upp á völlinn þá var þetta helvíti skemmtilegt. Við höfum lent undir áður, 2-0 og 1-0 en við gefumst aldrei upp," segir Hermann en Þróttarar lentu 2-0 undir í kvöld og náðu að jafna í 2-2.

Þróttur missti mann af velli í byrjun seinni hálfleiks með rautt spjald. Haukar misstu stuttu síðar mann af velli og var þetta tíu gegn tíu í síðari hálfleik lengst af. Í uppbótartíma fór svo þriðja rauða spjaldið á loft þegar Andy Pew, spilandi aðstoðarþjálfari Þróttar, fékk sitt annað gula spjald.

„Við gefumst aldrei upp. Þegar við erum manni færri þá erum við töluvert betra liðið og fengum betri færi. Ég er ánægður með leikmennina. Við gerðum alvöru leik úr þessu."

Það var umræða í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni að það sæist langar leiðir að Hemmi Hreiðars væri að þjálfa Þrótt. Talað var um það að Þróttarar væri góðir í að vera leiðinlegir inn á vellinum og að pirra andstæðinginn. Hvað finnst honum um þá umræðu?

„Menn hafa skoðanir á því, ég veit ekki hvort þeir hafi verið á leikjunum en við höfum verið að skora og fáum alltaf fullt af færum. Ég vil meina að fólki finnst leiðinlegt að spila á móti okkur því það er leiðinlegt að fá fullt af færum á sig."

Hermann hefur verið að þjálfa í Englandi undanfarin misseri en hann kom heim í síðasta mánuði og tók við Þrótti. Hvernig líkar honum þar?

„Þetta er frábært, alveg meiriháttar. Ég er búinn að vera ótrúlega ánægður með allt hjá félaginu. Það er mikil gleði hjá okkur og við förum langt á því, að það er mikill liðsandi hjá okkur. Það var svekkjandi að tapa en við tökum allt þetta jákvæða," sagði Hermann en hann er búinn að koma Þrótti í bullandi toppbaráttu.

Hann ræðir nánar um deildina og liðsstyrk í viðtalinu að ofan. Pólski vinstri bakvörðurinn Hubert Kotus er kominn til landsins og gæti spilað í næsta leik.
Hemmi tók við Þrótti í júlí og er búinn að gera mjög flotta hluti.

Hemmi tók við Þrótti í júlí og er búinn að gera mjög flotta hluti.

Canon

Mynd: Þróttur V

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.