Fotbolti.net
28.08.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alvarez ekki með um helgina

Alvarez ekki með um helgina
Canon

Mynd: EPA

Julian Alvarez verður ekki með Atletico Madrid á morgun þegar Atletico mætir Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni. Alvarez hefur verið orðaður í burtu frá Atletico að undanförnu, bæði við Barcelona og Arsenal.

Diego Simeone, stjóri Atletico, staðfestir að Alvarez verði ekki með á morgun. Argentínski sóknarmaðurinn hefur ekki æft með Atletico síðustu þrjár daga.

„Þegar Julian snýr til baka á æfingar þá mun ég gera allt sem ég get til að honum líði eins og hann sé jafn mikilvægur og hann hefur verið," sagði Simeone.
Alvarez hefur ekki æft með Atletico - Arsenal eina útgönguleiðin?
TENGT EFNI

Alvarez hefur ekki æft með Atletico - Arsenal eina útgönguleiðin?

Atletico er ósátt við nálgun Barcelona í sumar sem hefur reynt að fá Alvarez. Félagið vill alls ekki selja hann og hvað þá til Barcelona. Arsenal virðist því vera eini möguleiki Alvarez í sumar ef hann vill fara fyrir gluggalok.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.