Fotbolti.net
28.09.19 - 16:44
Hafliði Breiðfjörð

Óli Jó: Ég verð ekki þjálfari hér áfram

Auglýsing
Óli Jó skilur nú við Val eftir fimm ára starf. Á fjórum af þessum árum skilaði hann titli í hús.

Óli Jó skilur nú við Val eftir fimm ára starf. Á fjórum af þessum árum skilaði hann titli í hús.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Það var fínt að vinna þetta, það er langt síðan við höfum unnið leik og það hefði verið hægt að gefast upp og hætta þessu en ég er ánægður með frammistöðuna í dag,"</i> sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals eftir 2 - 0 sigur á HK í lokaumferð Pepsi Max-deildar karla í dag.
Valsmenn voru opnir í leiknum í dag og HK komst í fjölda færa.

„Við höfum verið opnir síðustu fimm ár að minnsta kosti svo það er ekkert nýtt að við séum opnir," sagði Óli.

En var þetta kveðjuleikur hans með Val?

„Já, allavega í bili. Ég verð ekki þjálfari hérna áfram. Þetta er eins og það er í íþróttunum, menn ráða og reka. Ég var reyndar ekki rekinn, samningurinn minn var ekki framlengdur," sagði Óli, en er hann ósáttur?

„Nei nei, ég er búinn að eiga frábær ár hérna og það er frábært að starfa hérna. Frábært fólk sem er hérna. Ég er ánægður með það," sagði hann. En hefur hann átt samtal við félagið og skilur hann sáttur?

„Bæði og, við skulum orða það þannig," sagði Óli en ætlar hann að þjálfa áfram?

„Ég held ég geri það nú eða ég vona það. Eftir þetta tímabil sem er búið að vera mjög erfitt er maður samt svolítið tómur og ekki mikil löngun í fótbolta eða að hugsa um fótbolta. En það kemur pottþétt þegar ég er búinn að fara í smá frí."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.