Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 28. september 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Diego Costa um Suarez: Annar getur barist og hinn getur bitið
Suarez kemur inn á fyrir Costa.
Suarez kemur inn á fyrir Costa.
Mynd: Getty Images
Luis Suarez stimplaði sig hressilega inn hjá Atletico Madrid með tveimur mörkum og einni stoðsendingu í frumraun sinni með liðinu í gær.

Suarez kom inn á sem varamaður fyrir Diego Costa á 70. mínútu og hjálpaði Atletico Madrid að vinna 6-1.

Costa fagnar því að fá Suarez til félagsins.

„Hann er mjög góður. Annar okkar getur séð um að berjast og hinn getur séð um að bíta," sagði Costa í viðtali eftir leik.

Costa vísaði þar í það að Suarez hefur þrívegis á ferlinum verið dæmdur í leikbann fyrir að bíta andstæðinga sína. Síðast á HM 2014 þegar hann beit Giorgio Chiellini.
Athugasemdir
banner
banner
banner