Fotbolti.net
28.09.26 - 23:31
Brynjar Ingi Erluson

Aðeins sá fjórði í sögunni

Þjálfaratíð Zidane í franska landsliðinu byrjar vel

Þjálfaratíð Zidane í franska landsliðinu byrjar vel

Canon

Mynd: EPA

Franski landsliðsþjálfarinn Zinedine Zidane kom sér í fámennan hóp með 1-0 sigri Frakka á Belgum í Þjóðadeildinni í kvöld.
Zidane: Ég elska þessa týpu af leikmanni
TENGT EFNI

Zidane: Ég elska þessa týpu af leikmanni

Zidane og lærisveinar hans fögnuðu öðrum sigrinum í jafnmörgum leikjum undir hans stjórn þegar Michael Olise tryggði Frökkum sigur með laglegu marki undir lok leiksins.

Frakkar hafa því unnið báða leiki sína undir stjórn Zidane og er hann aðeins fjórði þjálfarinn í sögu franska landsliðsins til að byrja með tveimur sigrum.

Henri Guerin gerði það árið 1964, Henri Michel tuttugu árum síðar og Aime Jacquet árið 1994.

Byrjunin hjá Zidane hefur því verið góð og hann fær tækifæri til að vinna þriðja leikinn þegar Frakkar mæta Ítalíu á föstudag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.