28.09.26 - 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Zidane: Ég elska þessa týpu af leikmanni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Zinedine Zidane, þjálfari franska landsliðsins, ausaði Michael Olise lofi eftir magnað einstaklingsframtak hans í 1-0 sigri Frakka á Belgíu í kvöld.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Einstaklingsframtak Olise tryggði Frökkum sigur
Frakkar voru með hálfgert varalið í fyrri hálfleiknum og sköpuðu sér ágæt færi, en það þurfti eitthvað sérstakt til að sækja öll stigin.
Zidane setti Olise inn á og hann reyndist hetjan þegar tvær mínútur voru eftir. Hann tók þá mikinn sprett með boltann upp völlinn áður en hann skoraði með laglegu skoti.
„Ég sá hann fara framhjá varnarmanni og sagði við sjálfan mig: 'Hann mun skora'. Ég hvatti hann áfram af öllu hjarta. Hann er einstaklega hæfileikaríkur og ég elska þessa týpu af leikmanni.“
„Þegar hann spilar þá vill hann skemmta áhorfendum, en það er ekki það eina. Hann skilur leikinn ótrúlega vel, fylgist með hreyfingum andstæðingsins og veit hvenær hann á að sækja og hvenær hann á að fara til baka,“ sagði Zidane.
Olise hefur verið mikilvægur í fyrstu tveimur leikjunum undir stjórn Zidane. Hann lagði upp fyrir Kylian Mbappe í 1-0 sigrinum á Tyrkjum og svo með sigurmarkið í kvöld.