28.09.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimir: Tímasetningin gerði okkur erfitt fyrir

Gavin Bazunu

Mynd: EPA

Gavin Bazunu

Mynd: EPA
Írland vann frábæran sigur á Ísrael í Þjóðadeildinni í gær eftir erfiða tíma í aðdraganda leiksins.
Það gekk mikið á og margir Írar voru ekki ánægðir með að leikurinn færi fram. Leikmenn héldu kosningu um hvort þeir vildu spila leikinn og markvörðurinn Gavin Bazunu ákvað að taka ekki þátt.

TENGT EFNI
Heimir: Eftir þetta verða öll vandamál kjúklingaskítur
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur við bakið á sínum manni.
„Enginn véfengdi ákvörðun hans. Það var bara tímasetningin sem gerði okkur erfitt fyrir að bregðast við henni, en enginn okkar bað hann um að taka ekki afstöðu. Nú flýgur hann aftur með okkur í flugvélinni. Hann er í hópnum," sagði Heimir.
„Planið er að hann verði með okkur gegn Austurríki og svo ekki gegn Ísrael í seinni leiknum."