28.09.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon
„Leiðinlegt fyrir gula hjartað í mér“
Landsliðsmaðurinn Daníel Leó um fall uppeldisfélagsins Grindavík niður í 2. deild

Daníel Leó Grétarsson lék með Grindavík út sumarið 2014.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Leó er lykilmaður í vörn Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það var mikill skellur fyrir Grindavík að falla niður í 2. deild í sumar. Landsliðsmiðvörðurinn Daníel Leó Grétarsson er uppalinn Grindvíkingur og lék með liðinu þar til hann fór út í atvinnumennsku eftir sumarið 2014.
Hann segir það hafa verið mjög leiðinlegt að sjá Grindavík falla úr Lengjudeildinni í sumar en hann þekkir þjálfarateymið, Ray Anthony Jónsson og Marko Valdimar Stefánsson, mjög vel.

TENGT EFNI
Engan bilbug að finna á Grindvíkingum - „Beint upp aftur"
„Ég fylgist vel með og spilaði bæði með Ray og Marko. Ég hef verið í smá sambandi við þá og sérstaklega Marko þar sem við erum mjög góðir vinir. Þetta er auðvitað leiðinlegt, leiðinlegt fyrir gula hjartað í mér sem er alltaf sterkt. Maður fylgist alltaf með," segir Daníel Leó.
Það hefur verið erfitt og krefjandi að halda uppi íþróttastarfi í Grindavík undanfarin ár vegna þeirra jarðhræinga sem hafa verið á svæðinu og þarf ekki að rekja ástæðuna fyrir því nánar fyrir lesendum.
Trúir því að fótboltinn muni blómstra aftur í Grindavík
„Það er auðvitað erfitt að vera í því að halda þessu uppi, þú ert ekki með allt bæjarfélagið sem þú ert vanur að vera með á bak við þig. Vonandi að þeir rífi sig í gang og haldi áfram. Þeir ákváðu að fara þetta á aðeins yngri mönnum núna og vonandi taka þeir 2. deildina og komast aftur upp í þá fyrstu," segir Daníel.
„Þetta snýst um að halda áfram í þessari baráttu þar til bærinn er kominn í fullan gang aftur. Þá eru sterkir bakhjarlar sem eru örugglega tilbúnir að hjálpa liðinu að komast enn framar."
„Íslensk félög treysta á sjálfboðastörf og mönnum sem þrífast á ástríðunni fyrir félaginu og bænum. Sem betur fer er til nóg af þeim í Grindavík. Það sést í körfunni, þegar allir taka höndum saman er þetta vel sterkt bæjarfélag og ég trúi því að fótboltinn í Grindavík muni blómstra aftur."