Fotbolti.net
28.09.26 - 21:28
Brynjar Ingi Erluson

„Það sem stjórnarformaðurinn sagði er nóg fyrir mig“

Joe Hart

Joe Hart

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Joe Hart, spekingur og fyrrum leikmaður Manchester City, segist trúa Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni félagsins, og er sannfærður um að félagið sé blásaklaust í kærumálinu við ensku úrvalsdeildina. Þetta sagði hann á BBC.
Stjórnarformaður Man City sendi opið bréf til stuðningsmanna
TENGT EFNI

Stjórnarformaður Man City sendi opið bréf til stuðningsmanna

Athletic greindi frá því fyrir helgi að Man City hefði verið fundið sekt um brot á 114 af 115 ákæruliðum sem snúa að fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Málið hefur verið mikið rætt síðustu daga og nú hefur Hart tjáð sig, en hann var einn af lykilmönnum liðsins á stórum hluta þess tímabils sem er til rannsóknar, frá 2009 til 2018.

Hart stóð á milli stanganna hjá City öll þessi ár nema þau síðustu tvö, en hann missti sæti sitt í liðinu eftir að Pep Guardiola tók við árið 2016.

Eftir að hafa lesið opið bréf stjórnarformannsins Khaldoon Al Mubarak segist Hart ekki hafa ástæðu til að efast um félagið.

„Ég hef hlustað á alla fara niður hverja einustu kanínuholu og hverja einustu umræðu. Mín skoðun er að ég hef enga ástæðu til að ekki treysta Khaldoon. Það sem hann sagði er nóg fyrir mig.“

„Ég elska hvernig hann talaði og elskaði bréfið því þetta var frá einhverjum sem er virkilega annt um félagið.“

„Ef Man City verður dæmt sekt, sem ég tel ekki miklar líkur á af því sem Khaldoon sagði þá þarf auðvitað að eiga þessar umræður, en akkúrat núna er ég fullviss og mjög rólegur. Ég er stoltur af því sem ég afrekaði og gerði með Manchester City, og því sem við afrekuðum sem lið. Það breytist aldrei og gerir það ekki fyrr en þú segir mér annað.“

„Ég gerði það sem ég gerði. Ég spilaði ellefu á móti ellefu og barðist á vellinum. Ég vann suma leiki, tapaði sumum og gerði stundum jafntefli síðan tók ég í hendur á mönnum og gekk af velli. Ég veit hvað ég og liðið gerði og hvernig það gerðist, en mér leið aldrei eins og við værum að plotta eitthvað,“
sagði Hart.
Hart var mikilvægur í liði Man City stærstan hluta þess tímabils sem

Hart var mikilvægur í liði Man City stærstan hluta þess tímabils sem

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.