Fotbolti.net
28.09.26 - 20:53
Brynjar Ingi Erluson

Þjóðadeildin: Einstaklingsframtak Olise tryggði Frökkum sigur

Olise fagnar sigurmarkinu

Olise fagnar sigurmarkinu

Canon

Mynd: EPA

Michael Olise var hetja Frakka í 1-0 sigrinum á Belgíu í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Zinedine Zidane stillti upp hálfgerðu varaliði gegn Belgum en Frakkar voru engu að síður sterkari aðilinn þegar á heildina var litið.

Belgar fengu nokkur góð færi, en Frakkar sköpuðu sér meira. Desire Doue átti skot í slá eftir magnað einstaklingsframtak og þá björguðu Belgar einnig á línu í fyrri hálfleiknum.

Zidane gerði nokkrar breytingar í þeim síðari og sendi meðal annars Olise inn á. Hann reyndist hetjan þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, keyrði upp völlinn og lét vaða áður en boltinn hafnaði í netinu.

Naumur en góður 1-0 sigur Frakka varð því niðurstaðan og eru þeir með fullt hús stiga eftir tvo leiki í A-riðli.

Í sama riðli unnu Ítalir afar sannfærandi 4-1 sigur á Tyrkjum í Bursa.

Tyrkir fengu algert afhroð í byrjun og voru komnir þremur mörkum undir á fyrsta hálftímanum. Alessandro Bastoni kom Ítalíu yfir á 9. mínútu þegar hann tæklaði boltann í netið eftir hornspyrnu.

Annað markið kom eftir glæsilega sókn þar sem Ítalir léku stuttum og hnitmiðuðum sendingum sín á milli áður en Michael Kayode fékk boltann hægra megin í teignum. Skot hans var ekki sérstaklega fast, en markvörður Tyrkja varð samt að verja til hliðar og Davide Frattesi var mættur til að skora af stuttu færi.

Kayode bætti síðan við þriðja markinu fimm mínútum síðar og fóru Ítalir með þriggja marka forystu inn í hálfleikinn. Tyrkir komu ákveðnir út í síðari hálfleik og Baris Yilmaz minnkaði muninn, en aðeins þremur mínútum síðar gerði Pio Esposito endanlega út um leikinn.

Hann og bróðir hans Sebastiano komu sér jafnframt í sögubækurnar. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1915 sem bræður byrjuðu saman fyrir ítalska landsliðið og í fyrsta sinn síðan árið 2000 sem bræður spiluðu saman með liðinu, en þá gerðu Simone og Filippo Inzaghi það.

Ítalir eru því komnir með þrjú stig í riðlinum en Tyrkir eru enn án stiga.

Í B-deildinni gerðu Norður-Írland og Ungverjaland markalaust jafntefli í B-riðli. Norður-Írar eru á toppnum með fjögur stig en Ungverjar náðu í sitt fyrsta stig.

Bosnía og Hersegóvína vann þá góðan 4-2 sigur á Rúmeníu og Svíar höfðu 3-1 sigur á Pólverjum. Benjamin Nygren, Yasin Ayari og Viktor Gyökeres skoruðu mörk Svía.

Svíar eru á toppi D-riðils með fullt hús stiga, Bosnía og Hersegóvína er í öðru sæti með fjögur stig, Pólland í því þriðja með eitt stig og Rúmenía stigalaus á botninum.

Úrslit og markaskorarar:

A-deild:

Belgía 0 - 1 Frakkland
0-1 Michael Olise ('88 )

Tyrkland 1 - 4 Ítalía
0-1 Alessandro Bastoni ('9 )
0-2 Davide Frattesi ('22 )
0-3 Michael Kayode ('27 )
1-3 Baris Yilmaz ('47 )
1-4 Pio Esposito ('50 )

B-deild:

Norður-Írland 0 - 0 Ungverjaland

Rúmenía 2 - 4 Bosnía og Hersegóvína
0-1 Armin Gigovic ('12 )
0-2 Tarik Muharemovic ('19 )
1-2 Daniel Birligea ('28 )
1-3 Haris Tabakovic ('40 )
1-4 Ermin Mahmic ('55 )
2-4 Alexandru Cicaldau ('62 )

Svíþjóð 3 - 1 Pólland
1-0 Benjamin Nygren ('8 )
1-1 Sebastian Szymanski ('43 )
2-1 Yasin Ayari ('63 )
3-1 Viktor Gyokeres ('72 )
Gyökeres skoraði fyrir Svía

Gyökeres skoraði fyrir Svía

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.