Upptaka - Guðjón Baldvins: Í stúkunni út af þessari vitleysu
Auglýsing

Guðjón á æfingu með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón fékk dýrkeypt gult fyrir að fagna marki á föstudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Að hann hafi ekki fengið að spila meira í sumar finnst mér ótrúlega skrítið

Íslendingaliðið Halmstad er í fallhættu í sænsku úrvalsdeildinni þegar ein umferð er eftir. Liðið er í þriðja neðsta sæti og getur ekki farið neðar en það lið sem endar þar mun fara í umspil um úrvalsdeildarsæti á næsta ári.
„Við erum búnir að vinna tvo leiki í röð núna sem hefur ekki gerst hjá Halmstad í 2-3 ár í sænsku úrvalsdeildinni. Eins sorglegt og það hljómar,\" sagði Guðjón Baldvinsson, sóknarmaður Halmstad, í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn.
Halmstad er stigi á eftir Brommapojkarna sem er í öruggu sæti fyrir ofan en þessi lið mætast á heimavelli Halmstad í úrslitaleik í lokaumferðinni.
„Við erum með betri markatölu en þeir og ef við vinnum þá erum við öruggir með sæti í deildinni. Ef við gerum jafntefli þá förum við í þetta umspilssæti sem við viljum helst sleppa við. Það er alls ekkert öruggt í þessu umspili eins og við sáum í fyrra þegar við komumst upp í gegnum það.\"
Laugardals-fílingur
Guðjón skoraði mikilvægt mark þegar Halmstad vann Hacken á föstudagskvöld en fékk gult spjald í fagnaðarlátunum. Hann verður því í banni í lokaumferðinni.
„Völlurinn hjá Hacken er þannig að það er smá Laugardals-fílingur í þessu, það eru auglýsingaskilti í kring og langt upp í stúkuna. Þegar ég skoraði 2-1 fagnaði ég vel og innilega enda eitt mikilvægasta mark sem ég hef skorað. Ég stökk yfir auglýsingaskiltin og fékk gult spjald fyrir það,\" sagði Guðjón.
„Ég hafði ekki hugmynd um að það mætti ekki. Ég sit uppi í stúku í þessum úrslitaleik út af þessari vitleysu.\"
Hann metur möguleikana góða gegn Brommapojkarna en leikurinn verður næsta sunnudag.
„Þetta er gervigras-lið sem hefur ekki verið sérstakt á grasi. Okkar heimavöllur er farinn að syngja sitt síðasta á seinni hluta tímabilsins og það er ýmislegt sem gæti hjálpað okkur.\"
Kristinn á að vera í byrjunarliðinu
Kristinn Steindórsson leikur með Halmstad en hann tryggði liðinu sigur gegn Mjallby á dögunum. Kristinn hefur þurft að verma varamannabekkinn mikið en gæti tekið stöðu Guðjóns í lokaumferðinni.
„Hann á að vera í byrjunarliðinu allan daginn. Að hann hafi ekki fengið að spila meira í sumar finnst mér ótrúlega skrítið,\" sagði Guðjón um stöðu Kristins.
Guðjón hefur skorað fimm mörk í deildinni í sumar. „Þetta hljómar kannski furðulega en mér finnst ég aldrei hafa spilað betur en ég hef gert í ár en hef samt skorað minna. Það eru blendnar tilfinningar í þessu. Að sjálfsögðu hefði ég viljað skora meira en maður telur bara stigin í staðinn,\" sagði Guðjón sem líkar lífið í Halmstad vel.
„Þetta er svakalega skemmtileg deild og þú getur spilað við stór lið fyrir framan marga áhorfendur þar sem stemningin er mikil. Svo getur þú spilað gegn liðum þar sem eru þúsund manns. Þetta er blandað en rosa skemmtilegt að spila í þessari deild.\"
Viðtalið má heyra í heild sinni í spilaranum hér að ofan.