Lionel Messi skoraði og lagði upp þegar Barcelona vann 2-0 sigur á Juventus á útivelli í Meistaradeildinni.
Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Fullkomið kvöld Man Utd - Börsungar unnu Juve
Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Fullkomið kvöld Man Utd - Börsungar unnu Juve
Barcelona ákvað að grínast í Juventus á samfélagsmiðlum eftir leikinn.
„Það gleður okkur að þið sáuð geitina á ykkar velli," var skrifað á Twitter-reikningi Barcelona og því beint til Juventus.
Sú umræða hvort Messi eða Cristiano Ronaldo sé besti fótboltamaður allra tíma hefur verið langlíf. Það er erfitt að gera upp á milli þessara ótrúlegu fótboltamanna.
Ronaldo var ekki með Juventus í kvöld þar sem hann er enn með kórónuveiruna.
We are glad you were able to see the 🐐 on your pitch, @juventusfcen! 😘 pic.twitter.com/yh74wh0lNJ
— FC Barcelona (@FCBarcelona) October 28, 2020
Athugasemdir