Fotbolti.net
28.10.26 - 10:10
Elvar Geir Magnússon

Kuyt stýrir gegn Liverpool

Dirk Kuyt er tekinn við Fenerbahce.

Dirk Kuyt er tekinn við Fenerbahce.

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Hollendingurinn Dirk Kuyt hefur verið ráðinn bráðabirgðastjóri tyrkneska liðsins Fenerbahce viku áður en liðið mætir Liverpool í Meistaradeildinni.

Kuyt, sem er 46 ára, var aðstoðarmaður Ismail Kartal sem sagði upp eftir 2-1 tap gegn erkifjendunum í Galatasaray á mánudag.

Kuyt stýrir liðinu þar til nýr stjóri verður ráðinn og bendir því til þess að hann muni stýra gegn sínu fyrrum félagi Liverpool.
Kuyt varð tyrkneskur meistari með Fenerbahce sem leikmaður 2014 en hann var sex ár hjá Liverpool. Hann skoraði 71 mark í 285 leikjum fyrir LIverpool og vann deildabikarinn með liðinu 2012.

Kuyt stýrði ADO Den Haag, Beerschot og FC Dordrecht áður en hann varð aðstoðarstjóri Fenerbahce í júní 2026.

Kuyt tekur við Fenerbahce í fimmta sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar en liðið er sex stigum frá toppliði Galatasaray. Fyrsti leikur Kuyt með stjórnartaumana verður deildarleikur gegn Göztepe um komandi helgi en leikurinn gegn Liverpool verður næsta miðvikudag.
Kuyt í landseik með Íslandi 2011.

Kuyt í landseik með Íslandi 2011.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.