Fotbolti.net
28.10.26 - 10:14
Kári Snorrason

Vonbrigðarlið Bestu deildarinnar

Djuric var einn skemmtilegasti leikmaður deildarinnar með Víkingi en átti erfitt uppdráttar fyrir norðan.

Djuric var einn skemmtilegasti leikmaður deildarinnar með Víkingi en átti erfitt uppdráttar fyrir norðan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bestu deildinni lauk um síðustu helgi og var farið yfir lokaumferðina og tímabilið í Innkastinu. Þar var meðal annars farið yfir vonbrigðarlið tímabilsins.

Liðið er að sjálfsögðu sett saman til gamans, en við val á leikmönnum var fyrst og fremst tekið mið af þeim væntingum sem gerðar voru til þeirra fyrir tímabilið.
Í markinu er Árni Snær Ólafsson sem lagði hanskana á hilluna eftir tímabil.

Ívar Örn Árnason er meðal þriggja varnarmanna en hann var keyptur til Breiðabliks dýrum dómi frá KA fyrir mót. Hólmar Örn Eyjólfsson er eini fulltrúi Vals í liðinu og þá var heimkoma Ara Leifssonar gleymanleg.

Djúpur á miðju er Guðmundur Þórarinsson sem kom ekki í deildina með sama hvelli og búist var við. Með honum djúpur á miðju er Samúel Kári Friðjónsson sem var keyptur til Vals frá Stjörnunni fyrir háa fjárhæð snemma móts.

Þar örlítið fyrir framan er Framarinn Simon Tibbling. Svíinn var í liði tímabilsins á síðasta ári en meiðsli settu strik í reikninginn á nýloknu tímabili.

Á vinstri kanti er Birnir Snær Ingason sem gekk í raðir Stjörnunnar síðasta vetur. Hafandi verið einn skemmtilegasti leikmaður deildarinnar síðustu ár náði hann ekki sama takti í Garðabænum í sumar.

Hægra megin er Danijel Dejan Djuric sem var keyptur fyrir metfé til KA frá króatíska félaginu NK Istra rétt fyrir mót. Danijel fann aldrei fjöl sína og náði ekki að koma sér á blað í deildinni.

Vuk Oskar Dimitrijevic er þar fyrir framan. Hann var meðal bestu leikmanna Fram á síðasta tímabili en hann skoraði aðeins þrjú mörk í ár þrátt fyrir að spila 26 leiki.

Árni Vilhjálmsson leiðir línuna en hann náði ekki að rétta afleitt gengi Stjörnunnar við og skoraði hann aðeins eitt mark fyrir liðið á tímabilinu.

Þjálfarinn er Jökull Elísabetarson en Stjörnunni var spáð 3. sæti fyrir mót en hann var látinn fara eftir tíu umferðir þegar liðið sat í 9. sæti með tíu stig.

Árni Snær Ólafsson átti erfitt tímabil.

Árni Snær Ólafsson átti erfitt tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Örn var keyptur dýrum dómi til Breiðabliks frá KA.

Ívar Örn var keyptur dýrum dómi til Breiðabliks frá KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var í liði tímabilsins í fyrra en meiðsli settu strik í reikninginn í ár.

Var í liði tímabilsins í fyrra en meiðsli settu strik í reikninginn í ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan á alls fimm fulltrúa í liðinu.

Stjarnan á alls fimm fulltrúa í liðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrátt fyrir gott gengi Framara á liðið tvo fulltrúa í vonbrigðarliðinu.

Þrátt fyrir gott gengi Framara á liðið tvo fulltrúa í vonbrigðarliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.