Fotbolti.net
28.10.26 - 08:10
Elvar Geir Magnússon

Liverpool og spænsku risarnir hafa áhuga á Jeltsch

Finn Jeltsch með knöttinn.

Finn Jeltsch með knöttinn.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Mörg stórlið renna löngunaraugum til efnilegs varnarmanns Stuttgart, Chelsea leggur áherslu á að landa leikmanni Bournemouth og þýskur sóknarmaður er orðaður við ensku úrvalsdeildina. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.
Liverpool, Barcelona og Real Madrid eru meðal fjölmargra félaga í Evrópu sem hafa áhuga á þýska miðverðinum Finn Jeltsch (20) hjá Stuttgart. (Sport)

Chelsea einbeitir sér nú að því að fá Alex Scott (23) frá Bournemouth, en félagaskiptin gengu ekki í gegn í sumar. Enski miðjumaðurinn er einnig á óskalista Liverpool. (Florian Plettenberg)

Chelsea, Manchester City, Arsenal, Tottenham og Newcastle hafa öll fylgst með Nicolo Tresoldi (22), framherja Club Brugge sem hefur leikið fyrir yngri landslið Þýskalands. Belgíska félagið hefur útilokað að selja hann í janúar. (Teamtalk/Het Nieuwsblad)

Manchester United hafði áætlað að reka Michael Carrick í þessari viku en stjórnendur náðu ekki að sameinast um eftirmann hans. (The I)

Manchester United þyrfti að greiða Newcastle um 3 milljónir punda í bætur ef félagið ákveður að ráða Eddie Howe í stað Carrick. (Guardian)

Brighton hefur engar áhyggjur af því að missa paragvæska miðjumanninn Diego Gomez (23) en það er áhugi frá AC Milan og Atletico Madrid. (Football Insider)

Pierre Sage er enn undir mikilli pressu og gæti verið rekinn ef Crystal Palace tapar fyrir Tottenham á laugardaginn. (Guardian)

Liverpool mun ekki reyna að fá kantmanninn David Otorbi (19) frá Valencia í janúar ef spænska félagið nýtir sér ákvæði um að hækka riftunarverð í samningi hans úr 30 milljónum punda í 50 milljónir. (Football Insider)

Juventus hefur sett bandaríska framherjann Folarin Balogun (25) hjá Mónakó efstan á óskalista sinn fyrir janúargluggann. Balogun var nálægt því að ganga til liðs við Everton á lokadegi félagaskiptagluggans en ekkert varð úr þeim skiptum. (Tuttosport)
Chelsea vill Scott.

Chelsea vill Scott.

Canon

Mynd: EPA

Nicolo Tresoldi.

Nicolo Tresoldi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.