Útskýrir af hverju stjórnin ákvað að halda Sigga

Sveinn Elías og Siggi Höskulds.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór fékk á kafla einungis tvö stig úr ellefu leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Ingólfsson (2009) skoraði fjögur mikilvæg mörk fyrir Þór, þar af bæði mörkin gegn FH í lokaleiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Trúin á verkefninu hélst og Þór verður í Bestu deildinni 2027.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Gyrðir kom frábærlega inn í lið Þórs og snarbatnaði varnarleikur liðsins eftir komu hans.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kevin Vazquez reyndis gulls ígildi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfarateymið; Siggi Höskulds og Eiður Ben.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Góð stund á laugardaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ungir Þórsarar stigu upp á lykilaugnablikum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Við ætluðum ekki að kvika frá því sem við vorum að gera af því okkur fannst við vera að gera marga hluti rétt og okkur langaði að láta þetta ganga upp með þeim hætti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aftur gerðust frábærir hlutir fyrir Þór á Þróttarvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikil fagnaðarlæti eftir lokaflautið.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Vissi að leikurinn færi aldrei fram í Kaplakrika.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Sveinn Elías og Siggi Höskulds.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir sex stig úr fyrstu þremur leikjunum tók við ansi erfiður kafli þar sem Þórsarar fengu einungis tvö stig úr ellefu leikjum. Í kjölfarið opnaði félagaskiptaglugginn og sjö stig fengust úr næstu þremur leikjum. Aftur lenti liðið í mótlæti, þrír tapleikir í röð og tímabilið að mörgu leyti undir í Vestmannaeyjum 29. ágúst.
Þar vannst 1-0 sigur í fyrsta úrslitaleik af sjö og annar 1-0 sigur á FH í kjölfarið. Þórsarar töpuðu hins vegar fyrstu tveimur leikjum í neðri hlutanum, m.a. 3-0 gegn grönnunum í KA og útlitið var ekki gott. Við tók landsleikjahlé og allir leikirnir eftir það unnust, tveir síðustu eftir að liðið lenti marki undir snemma leiks.
Fótbolti.net ræddi við Svein Elías Jónsson sem er formaður fótboltadeildar Þórs.
„Við vorum í svolitlum vandræðum með að setja saman lið sem við værum sáttir með að fara inn í Bestu deildina. Þegar það kemur út að við missum (Ibrahima) Balde voru allir sammála um að hann væri rosalega mikilvægur fyrir liðið og leikstílinn. Við ætluðum að finna svipaða týpu en það tókst ekki. Svo missum við Sigfús Fannar (Gunnarsson) og Aron Inga (Magnússon) í meiðsli en þeir höfðu verið í rosalega stórum hlutverkum tímabilið á undan. Þegar við svo missum Isaac (Atanga) í meiðsli snemma móts þá var þetta orðið ansi þunnt. Í fyrri hluta mótsins vorum við að stilla í raun og veru upp slakara liði en því sem við höfðum teflt fram í Lengjudeildinni árið áður. Við vissum að við myndum þurfa að bregðast við því og tókum það samtal með þjálfurunum."
„Það sem okkur leið rosalega vel með frá upphafi var uppsetningin á þjálfarateyminu og planið sem við settum upp með þeim. Samtalið var á þá leið að við myndum standa saman í verkefninu sem við fórum af stað í."
„Það gerist á svo erfiðum tíma að Isaac meiðist, nýbúið að loka glugganum. Þetta verða á endanum of margir leikir þar sem okkur vantar ógn. Sigfús, sem hefði átt að koma beint inn í liðið, fær lungnabólgu og Atli Sigurjónsson meiðist. Það dettur svo mikið út á fyrri hlutanum."
„Þegar við komumst í gluggann veit ég ekki hvað það voru margir möguleikar sem við skoðuðum og hversu mörgum við heyrðum í. Á endanum vorum við líklega aðeins heppnir með blönduna sem fékkst inn," segir Sveinn Elías.
Hittu vel í glugganum
Þór sótti fimm leikmenn í glugganum, Aron Einar Gunnarsson stoppaði stutt en hjálpaði liðinu að verða eina liðið sem náði að leggja Víking að velli í Bestu deildinni á tímabilinu. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson kom á láni frá KR, Þorri Ingólfsson kom á láni frá Víkingi og Spánverjarnir Kevin Vazquez og Victor Bertomeu komu einnig inn.
„Ég held að við höfum ekki verið að reikna með þeim áhrifum sem Þorri myndi hafa á liðið okkar. Við vorum með unga og efnilega leikmenn fyrir, en hugarfarið hans er magnað. Hann náði heldur betur að skína."
„Sama með Gyrði, small strax inn í hópinn, leysti allar stöður og allar vel. Kannski var það lán í óláni að (Yann Emmanuel) Affi var í banni gegn ÍBV. Þá fannst blandan sem klárar svo mótið," segir Sveinn Elías sem tjáði sig sérstaklega um Kevin Vazquez og verða þau ummæli birt seinna í dag.
Risastórt verkefni að sannfæra nýja menn um að liðið myndi halda sér
Einhverjir hafa eflaust haldið að með því að fá einungis fjóra leikmenn væri Þór ekki að gera nóg í glugganum, staðan væri það slæm. Sú hugsun hefur ekki komið upp hjá stjórninni?
„Nei, í rauninni ekki. Okkur fannst með nýju leikmönnunum vera komin ákveðin dýnamík í hópinn. Þetta er ekki einstaklingsíþrótt, þú þarft að finna að það sé rétta stemningin fyrir verkefninu sem er framundan. Það var mjög erfitt að fá leikmenn í glugganum því þegar við töpuðum á móti Fram (6-1) þá var staðan orðin ógeðslega erfið. Markatalan var svo léleg að það var orðið risastórt verk að sannfæra leikmenn um að við værum að fara halda okkur uppi. Ef ég fann í samtölunum við leikmennina að þeir væru ekki að trúa því þá var það ekki leikmaður sem ég hafði áhuga á að bæta við hópinn. Þið á Fótbolta.net skrifuðuð um leikmenn sem við vorum í samtölum við, sumir þeirra tóku ákvörðun um að koma ekki en í öðrum tilfellum tókum við ákvörðun um að taka þá ekki."
Bauðst til að stíga til hliðar
Sigurður Heiðar Höskuldsson er aðalþjálfari liðsins og Eiður Benedikt Eiríksson er honum til aðstoðar. Siggi kom í viðtal í Innkastinu á laugardag og sagði frá því að hann hefði boðist til þess að stiga til hliðar um mitt mót.
„Það var alltaf trú, stjórnin mín stóð alltaf bak við mig. Ég bauð þeim að stíga til hliðar á miðju tímabili en þeir sögðu bara þvert nei. Ég bara gæti ekki verið ánægðari," sagði Siggi m.a. í viðtalinu.

Bauðst til að stíga til hliðar um mitt sumar
Fannst þeir ekki þurfa að bregðast við í þjálfaramálum
Sveinn Elías var spurður út í þessi ummæli.
„Það passar. Þetta samtal var rosalega þungt, þetta var í lotunni þar sem við vorum að tapa og tapa leikjum. Við Siggi ræðum mikið saman og á hverjum einasta leikdegi er hann búinn að sannfæra mig um hvað við séum að fara gera þann daginn og við séum að fara vinna leikinn. Svo þegar það gengur ekki, alveg eins og með framherja sem skora ekki mörk í mörgum leikjum, þá missa menn sjálfstraustið. Ég held að svipað hafi verið að gerast hjá þjálfarateyminu, þeir kannski farið að hugsa að þeir væru ekki að ná til hópsins."
„Það var aldrei þannig að leikmenn kæmu til mín og kvörtuðu yfir æfingum eða neinu. Það voru allir ánægðir með þjálfarana, það var ákefð á öllum æfingum, hátt tempó og gæði. Á þessum tíma vorum við að stilla sennilega upp lélegra liðið en við vorum með árið áður í deild neðar. Samtalið snerist því um að liðið væri ekki illa þjálfað og uppleggið ekki nógu gott, heldur væri liðið kannski einfaldlega ekki nógu sterkt og það væri verkefni sem við myndum laga í glugganum. Við töldum okkur vera með rétta teymið til að laga það með okkur. Okkur fannst við aldrei þurfa að bregðast við varðandi þjálfarana. Það hefur verið gott að vinna með Sigga frá því að hann kom, og ég tala nú ekki um fyrir einhvern sem er í sjálfboðaliðastarfi eins og við sem erum í stjórninni, þá skiptir rosalega miklu máli að þetta sé aðili sem sé gott og gaman að eiga við."
Ef liðið fellur þá gerist það bara
Eins og bent er á í upphafi greinar batnaði gengið eftir að glugginn opnaði, en fyrir leikinn í Vestmannaeyjum var útlitið ekki bjart. Var eitthvað stress þá?
„Nei, ég myndi ekki segja það. Samtalið var á þá leið að við værum bara að fara í fótboltaleiki til að vinna þá. Það væri bara tvennt sem gæti gerst, annað hvort myndum við falla eða ekki. Við horfðum ekki á þetta sem neinn heimsendi. Við ætluðum ekki að kvika frá því sem við vorum að gera af því okkur fannst við vera að gera marga hluti rétt og okkur langaði að láta þetta ganga upp með þeim hætti. Við vorum búnir að koma inn gæðum og reynslu."
„Með því að vera með Kevin og Greko (Christian Jakobsen) vorum við með reynslu, eldri leikmenn sem hafa spilað á stærra sviði, þá smitar það oft út frá sér þegar þú ert með unga stráka með þeim. Það var það sem við vorum að leitast eftir. Við vorum ekkert að velta því of mikið upp úr því að við gætum fallið, því þá myndi það bara gerast. Við tókum ekkert panikk, vissum að við yrðum að vinna fótboltaleiki ef við ætluðum að halda okkur."
Sama tilfinning og ári áður
Hvenær vissir þú að Þór myndi 100% ekki falla?
„Það var ekki fyrr en eftir næstsíðustu umferðina. Eftir KA leikinn var ég ekkert rosalega bjartsýnn, þá vorum við alveg þremur stigum á eftir þeim út af markatölunni. Ég var ekkert viss um að KA myndi tapa leik. FH var búið að finna einhvern kraft og um leið og þeir náðu í sín 30 stig þá vissum við að við gætum ekki náð þeim. Um leið og KA tapaði gegn Val vissi ég að við myndum ekki klúðra þessu."
„Ég fékk sömu tilfinningu og fyrir ári síðan, þá komumst við í toppsætið, spiluðum svo á Selfossi og töpuðum, en fengum svo toppsætið aftur umferð seinna. Ég hugsaði að við værum búnir að misstíga okkur og myndum ekki gera það aftur. Sama tilfinning hefði komið ef KA hefði tapað í umferðinni á undan á móti Stjörnunni. Ég hugsaði að ef við myndum aftur komast með þetta í okkar hendur þá myndum við aldrei sleppa takinu af því," segir Sveinn Elías.
Vissi að leikurinn færi aldrei fram í Kaplakrika
Lokaleikurinn fór fram á Þróttarvelli í Laugardal, sama velli og Þór vann úrslitaleik um toppsætið í Lengjudeildinni rúmu ári áður. Það var vegna þess að Kaplakrikavöllur, heimavöllur FH, var frosinn. Var góð tilfinning þegar ljóst varð að spilað yrði í Laugardal?
„Það skipti mig eiginlega engu máli. Ég var búinn að vera í samskiptum við KSÍ í vikunni og var búinn að segja þjálfarateyminu að þessi leikur færi aldrei fram í Kaplakrika, spáin væri bara þannig. Ég sagði þeim að þó að KSÍ myndi ekki taka ákvörðun strax þá væri niðurstaðan ljós. Það var ekki hægt að bjóða upp á þennan úrslitaleik fyrir okkur á frosnum grasvelli. Það skipti mig engu máli að þetta var í Laugardal, þetta var bara fótboltaleikur og svona leikur snýst miklu meira um hugarfar heldur en að þú náir akkúrat gæðunum fram sem þú ætlaðir þér í leiknum."
Þórsarar vildu fá vítaspyrnur í leiknum og sterkasta tilkallið gerði Þorri í fyrri hálfleik. Þegar ekkert víti var dæmt, hugsaðir þú að þetta gæti orðið dýrt?
„Ég spilaði leikinn í mörg ár og oft þegar maður lenti í svona og klikkaði á færum, þá hugsaði maður að við værum að fara fá þetta í bakið. Þetta var þannig augnablik, við vorum augljóslega rændir vítaspyrnu. Ég veit ekki af hverju, en í þessum leik hugsaði ég það aldrei (að við myndum fá það í bakið). Einar fær líka færi, mjög góð færi fyrir hann, eitt í hvorum hálfleik. Ég hugsaði þá bara að þetta færi 2-1, ég hugsaði aldrei að þetta myndi bíta okkur," segir formaðurinn.

Þór fékk á kafla einungis tvö stig úr ellefu leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Ingólfsson (2009) skoraði fjögur mikilvæg mörk fyrir Þór, þar af bæði mörkin gegn FH í lokaleiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Trúin á verkefninu hélst og Þór verður í Bestu deildinni 2027.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Gyrðir kom frábærlega inn í lið Þórs og snarbatnaði varnarleikur liðsins eftir komu hans.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kevin Vazquez reyndis gulls ígildi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfarateymið; Siggi Höskulds og Eiður Ben.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Góð stund á laugardaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ungir Þórsarar stigu upp á lykilaugnablikum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Við ætluðum ekki að kvika frá því sem við vorum að gera af því okkur fannst við vera að gera marga hluti rétt og okkur langaði að láta þetta ganga upp með þeim hætti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aftur gerðust frábærir hlutir fyrir Þór á Þróttarvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikil fagnaðarlæti eftir lokaflautið.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Vissi að leikurinn færi aldrei fram í Kaplakrika.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
