Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 29. desember 2018 09:31
Magnús Már Einarsson
Áramótakæfan 2018 á X977 í dag
Ísland tók þátt á HM á árinu 2018.  Það verður rifjað upp sem og margt annað!
Ísland tók þátt á HM á árinu 2018. Það verður rifjað upp sem og margt annað!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður stuð og stemning í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 á milli 12 og 14 í dag, laugardag.

Um er að ræða Áramótakæfuna, árlegan uppgjörsþátt Fótbolta.net á fótboltaárinu.

Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson gera upp fótboltaárið 2018.

Veitt verða verðlaun í hinum ýmsu flokkum og óvænt símtöl verða á dagskrá.

Frábær leið til að rifja upp allt það sem hefur gengið á í fótboltanum innanlands og erlendis árið 2018.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner