Hin bandaríska Shaina Ashouri er gengin í raðir Toronto í Kanada eftir að hafa leikið á Íslandi síðustu árin.
Shaina, sem getur leyst flestar stöður framarlega á vellinum, kom fyrst til Íslands 2021 og lék þá með Þór/KA. Í kjölfarið lék hún með FH í tvö tímabil og svo spilaði hún með Víkingi á síðasta tímabili.

Á síðasta tímabili spilaði hún 23 leiki í Bestu deildinni og skoraði hún átta mörk.
Hún er núna búin að semja við Toronto sem leikur í nýrri deild í Kanada.
„Ég gæti ekki verið spenntari," segir Shaina. „Núna er komið að nýjum kafla."
Athugasemdir