Fotbolti.net
29.01.25 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leikmaður Chelsea eltir Neymar til Santos

Leikmaður Chelsea eltir Neymar til Santos
Canon

Mynd: Chelsea

Deivid Washington, leikmaður Chelsea, er á leið til brasilíska félagsins Santos á láni. Fabrizio Romano greinir frá þessu.
Washington var í akademíu Gremio áður en hann skipti yfir til Santos og lék með aðalliðinu áður en hann gekk til liðs við Chelsea árið 2023.

Þessi 19 ára gamli Brasilíumaður kom við sögu í þremur leikjum á síðustu leiktíð en er ekki inn í myndinni hjá Enzo Maresca og hefur ekkert komið við sögu á þessari leiktíð.

Hann mun hitta Neymar hjá Santos en Neymar mun skrifa undir samning hjá félaginu á næstu dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.