Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 17:59
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd vill fá Tel á láni
Mynd: EPA
Manchester United hefur formlega skráð sig í baráttuna um franska sóknarmanninn Mathys Tel, sem er á mála hjá Bayern München í Þýskalandi.

Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur tekið ákvörðun um að yfirgefa Bayern fyrir gluggalok.

Áhuginn er mikill á þessum efnilega framherja og hefur Manchester United sett sig í samband við föruneyti leikmannsins.

United vill fá hann á láni en í augnablikinu er þetta ekki meira en áhugi. Félagið er með það í forgangi að losa sig við leikmenn, en það kemur vel til greina að reyna fá hann á láni ef Bayern samþykkir það. Þetta segir David Ornstein hjá Athletic.

Samkvæmt Fabrizio Romano er United eitt af sjö félögum sem vilja fá Tel í glugganum, en Tottenham er einnig sagt í baráttunni.

Tel kom til Bayern frá Rennes fyrir þremur árum og þegar spilað 82 leiki ásamt því að skora 16 mörk. Hann er talinn með efnilegustu framherjum Evrópu, en ekki fengið þann spiltíma sem hann telur sig verðskulda og vill því finna sér félag sem getur lofað stærra hlutverki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner