Telur sig hafa fengið gæðaleikmann - „Tikkar í öll boxin"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér finnst frábært að fá Jannik, ekki spurning að þetta er gæðaleikmaður miðað við ferilskrá og reynslu. Við hlökkum til að fá hann á æfingar og sjá hvernig hann stenst samanburð," sagði Jón Sveinsson, þjálfari Fram, eftir að félagið kynnti nýjan leikmann í dag.
Sá heitir Jannik Pohl og er 25 ára danskur framherji.
Sá heitir Jannik Pohl og er 25 ára danskur framherji.
„Þetta er búið að vera svolítið ferli, byrjaði fyrir nokkru síðan og hann var ein af þeim týpum sem við vorum að leita að. Það skiptir okkur máli hvort menn passi inn í hópinn og við viljum halda áfram að bæta umgjörðina. Við teljum að hann tikki í öll boxin. Ferlið er eins og það er, maðurinn er að koma frá Skandinavíu og þar eru Íslendingar víða. Við fórum að kann hvernig mann hann hafði að bera áður en við fórum í samningsviðræður. Það endaði þannig að hann spilar með okkur í sumar," sagði Nonni.
Jannik var liðsfélagi þeirra Arons Sigurðarsonar og Ágústs Hlynssonar hjá Horsens og þar var einnig Hallur Hansson sem nú spilar með KR.
„Það eru Íslendingar víða, hann spilaði með Horsens og það eru Íslendingar þar. Það eru líka aðrir sem hafa reynslu úr deildinni og við reyndum að fá eins miklar upplýsingar og hægt var áður en farið var í viðræður."
Hafiði áhyggjur af skrokknum á honum?
„Nei, hann fór í mjög ítarlega læknisskoðun í gær og vonandi verður það ekki vandamál. Hann fær smá tíma til aðlagast og okkur liggur ekki þannig á. Hann fær smá tíma til að koma sér í stand," sagði Nonni. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan.