Fotbolti.net
29.05.18 - 23:06
Mist Rúnarsdóttir

Óli Guðbjörns um markaskorarann: Hún datt inn með klukkutíma fyrirvara

Auglýsing
Óli var ánægður með hvernig liðið hans brást við vondu tapi í síðustu umferð

Óli var ánægður með hvernig liðið hans brást við vondu tapi í síðustu umferð

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
„Þetta var góð svörun hjá stelpunum eftir síðasta leik. Skipulagið okkar var betra í dag og allur leikurinn okkar þannig að ég er mjög ánægður að sjá hvernig við leystum þetta,“ sagði Ólafur Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigur á HK/Víkingum í dag. Liðið tapaði óvænt fyrir Grindavík í síðustu umferð og tókst að svara fyrir það í kvöld.
„Við vissum að við myndum fá færi og við sköpuðum helling af færum í þessu en þetta er hörkulið hjá HK/Víking og það var ekkert auðvelt að spila við þær. Úrslitin eru þannig ekkert ósanngjörn í tölum en auðvitað fengum við fleiri færi. Þetta var erfiður leikur og þess vegna var ég mjög ánægður með hvernig við komum til baka.“

Eina mark leiksins og þar af leiðandi sigurmarkið kom úr heldur óvæntri átt en Birna Jóhannsdóttir, 17 ára unglingalandsliðskona, fékk tækifæri í byrjunarliði Störnunnar í kvöld í fjarveru Þórdísar Hrannar sem var veik. Óli var ánægður með Birnu sem vissi ekki að hún mynda byrja leikinn fyrr en klukkustund fyrir leik.

„Hún datt inn með klukkutíma fyrirvara. Sú sem átti að spila var veik. Þetta er ung stelpa úr 2. flokki. Hún er búin að vera með okkur núna í tvö ár. Hún átti mjög flottan leik og þetta var frábært mark hjá henni. Hún kom vel inn í þetta og stelpurnar studdu hana vel. Það er gaman að sjá þegar leikmenn bregðast svona við og hafa svona stuttan fyrirvara. Það var lítið stress hjá henni.“

Óli gat einnig glaðst yfir annari innkomu en Telma Hjaltalín Þrastardóttir lék sínar fyrstu mínútur í Pepsi-deildinni síðan sumarið 2015 þegar hún kom inná undir lok leiksins. Telma sleit krossbönd í tvígang og hefur því verið í langri og strangri endurhæfingu.

„Það var mikil ánægja að sjá hana. Bæði fyrir liðið og hana sjálfa,“ sagði Óli en það var gaman að sjá hversu vel áhorfendur tóku á móti Telmu þegar hún kom inná.

„Þessi stelpa er fókuseruð og einbeitt og búin að vinna vel í sínu. Hún er á ágætis stað núna þannig að hægt og rólega fer hún að koma meira inn í þetta hjá okkur. En við megum ekki flýta okkur of mikið heldur.“

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Óla í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.