Fotbolti.net
29.05.23 - 16:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þrír varnarmenn fjarverandi hjá KA - Tveir meiddir og einn veikur

Ívar Örn Árnason

Ívar Örn Árnason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA og Fram eru þessa stundina að etja kappi á Greifavellinum á Akureyri í Bestu deildinni.

Lestu um leikinn: KA 4 - 2 Fram

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA gerir tvær breytingar á liðinu sem steinlá 4-0 gegn Víkingi í síðustu umferð. Pætur Petersen og Ingimar Stöle detta út úr liðinu. Elfar Árni Aðalsteinsson og Hrannar Björn Steingrímsson koma inn í þeirra stað.

KA hefur verið í miklum vandræðum í undanförnum leikjum en liðið hefur tapaði 10-0 samanlagt í síðustu þremur leikjum.

Það eru skörð hoggin í vörn KA í dag en Hallgrímur greindi frá því í viðtali við Stöð 2 fyrir leikinn að um meiðsli og veikindi væru að ræða.

Ívar Örn tók út leikbann í 4-0 tapi liðsins gegn Víkingi í síðustu umferð en hann er fjarverandi í dag vegna meiðsla rétt eins og Birgir Baldvinsson. Þá er Ingimar Stöle ekki með vegna veikinda.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.