Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Atletico Madrid sendi frá sér yfirlýsingu - „Þreyttir á lygum"
Mynd: EPA
Atletico Madrid sendi frá sér harðorða yfirlýsingu sem birtist í spænska miðlinum Marca í gær eftir miklar sögusagnir um framtíð Julian Alvarez.

Spænskir fjölmiðlar greindu frá því að Atletico Madrid væri tilbúið að selja Alvarez fyrir rétt verð og að Alvarez hafi beðið um að vera seldur.

„Það hefur ekkert tilboð komið í leikmanninn né fundur farið fram. Við erum þreyttir á lygum mánuðum saman, hálfsannindum, áreitni í garð leikmanna okkar í 'mixed zone' og fáránlegum spurningum sem eru hluti af fyrirfram ákveðinni herferð," segir í yfirlýsingunni.

„Þetta snýst um umboðsmenn, Julián hefur alltaf sýnt frábæra hegðun. Hann hefur skilið allt eftir á vellinum og sýnt mikla fagmennsku allan tímann. Við vitum að allur þessi hávaði var ekki honum að kenna, hann hefur alltaf hagað sér fullkomlega.“
Slapp
banner