Leikur Fram og Breiðabliks fór fram á Lambhagavelli í kvöld í 9. umferð Bestu deild karla. Fórbolti.net ræddi við Kennie Chopart, fyrirliða Fram, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Fram 4 - 3 Breiðablik
„Það er bara fínt að vinna leikinn, finnst við hefðum getað skorað aðeins fleiri mörk og klára leikinn aðeins fyrr og ekki vera að gera þetta svona spennandi. Við eigum nóg af skotum á markið og fengum ekki víti sem var 100% víti en dómarinn sá það ekki. En það hefði verið gott að klára þennan leik í stað þess að fá á sig tvö mörk og hafa allt of mikla spennu í lokin.''
Kennie spilar ansi mikilvægt hlutverk í sóknarleik Framara og er í ansi frjálsu hlutverki sem hefur heldur betur skilað sínu á þessu tímabili þar sem hann er markahæsti leikmaður Fram liðsins í ár.
„Ég er bara fram og til baka allan leikinn, ég er ekki bara sóknarmaður heldur líka varnarmaður. Mér finnst bara svo gaman að spila fótbolta, ég er að verða 36 ára eftir tvo daga en líður eins og ég sé 25 ára, svo mér líður vel."






















