Jose Mourinho verður næsti stjóri Real Madrid ef Florentino Perez verður endurkjörinn forseti spænska stórveldisins.
En yfirvonandi forsetakosningar eru að flækja málin töluvert.
En yfirvonandi forsetakosningar eru að flækja málin töluvert.
Samkvæmt ESPN hefur Mourinho þegar náð samkomulagi við Real um tveggja ára samning, en félagið hefur enn ekki staðfest ráðninguna opinberlega.
Ástæðan er sú að Florentino Perez, sitjandi forseti félagsins, hefur boðað til kosninga þann 7. júní næstkomandi þar sem hann fær mótframboð frá manni að nafni Enrique Riquelme.
Tafirnar gætu reynst dýrar fyrir Real Madrid. Félagið hafði samið við Benfica um sjö milljóna evra greiðslu fyrir að losa Mourinho undan samningi, en það verð gildir aðeins þangað til í dag, föstudag. Eftir það hækkar upphæðin upp í 15 milljónir evra samkvæmt samkomulagi.
Riquelme, mótframbjóðandi Perez, hefur auk þess gefið skýrt til kynna að Mourinho sé ekki hans fyrsti kostur sem þjálfari.
„Ég hef aldrei verið sérstakur stuðningsmaður Mourinho. Ég vil byggja upp langtímaverkefni,“ sagði Riquelme og bætti við að hann ætlaði sér að ráða yfirmann fótboltamála fyrir félagið ef hann yrði ráðinn.
Hvað gerist við Mourinho ef Perez verður ekki kosinn?
Mourinho, sem er 63 ára gamall, vill samkvæmt ESPN aðeins starfa þar sem hann finnur fyrir stuðningi og myndi ekki líða vel hjá stjórn sem hefur lýst því yfir opinberlega að hann sé ekki fyrsti kostur.
Portúgalinn er enn með samning hjá Benfica út næsta tímabil, en félagið er þegar farið að undirbúa lífið án hans og hefur meðal annars verið orðað við Marco Silva, stjóra Fulham.
Því gæti óvissan hjá Real Madrid endað með því að Mourinho verði án félags þrátt fyrir að vera sagður með samkomulag við spænska stórveldið.

