Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Snýr aftur 20 árum síðar
Sæti 40 til 37
Úr leik Sádi-Arabíu og Argentínu á HM 2022.
Úr leik Sádi-Arabíu og Argentínu á HM 2022.
Mynd: EPA
Herve Renard var rekinn frá Sádi-Arabíu stuttu fyrir mót
Herve Renard var rekinn frá Sádi-Arabíu stuttu fyrir mót
Mynd: EPA
Georgios Donis stýrir Sádum í sumar.
Georgios Donis stýrir Sádum í sumar.
Mynd: EPA
Salem Al-Dawsari er lykilmaður Sádi-Arabíu.
Salem Al-Dawsari er lykilmaður Sádi-Arabíu.
Mynd: EPA
Fabio Cannavaro lyfti bikarnum 2006 og snýr núna aftur í öðru hlutverki.
Fabio Cannavaro lyfti bikarnum 2006 og snýr núna aftur í öðru hlutverki.
Mynd: EPA
Khusanov er lykilmaður fyrir Úsbekistan.
Khusanov er lykilmaður fyrir Úsbekistan.
Mynd: EPA
Eldor Shomurodov er mikill markaskorari.
Eldor Shomurodov er mikill markaskorari.
Mynd: EPA
Túnis fagnar marki.
Túnis fagnar marki.
Mynd: EPA
Sabri Lamouchi er landsliðsþjálfari Túnis.
Sabri Lamouchi er landsliðsþjálfari Túnis.
Mynd: EPA
Hannibal Mejbri er líklega þekktasta nafnið úr liði Túnis.
Hannibal Mejbri er líklega þekktasta nafnið úr liði Túnis.
Mynd: EPA
Katar átti ekki gott mót á heimavelli fyrir fjórum árum.
Katar átti ekki gott mót á heimavelli fyrir fjórum árum.
Mynd: EPA
Afif er hæfileikaríkasti leikmaður Katar.
Afif er hæfileikaríkasti leikmaður Katar.
Mynd: EPA
Julen Lopetegui, landsliðsþjálfari Katar.
Julen Lopetegui, landsliðsþjálfari Katar.
Mynd: EPA
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.

Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Við erum búin að taka fyrir sæti 48 til 41 og núna eru það næstu fjögur lið.

40. Sádi-Arabía
Eru í 61. sæti á heimslistanum.

Sádi-Arabía er komið á sitt þriðja HM í röð en leiðin á mótið var langt frá því að vera sannfærandi. Frammistaðan í undankeppninni var oft stirð, Roberto Mancini missti starfið haustið 2024 og endurkoma Hervé Renard skilaði ekki þeim krafti sem margir höfðu vonast eftir. Þegar aðeins tæpir tveir mánuðir voru í fyrsta leik mótsins var aftur skipt um þjálfara og Grikkinn Georgios Donis tók við verkefninu. Það er alls ekki góðs viti að skipta um þjálfara svo stuttu fyrir mót en það lýsir kannski undirbúningnum vel. Sádi-Arabía hefur átt erfitt með að halda hreinu, fengið á sig mörk leik eftir leik og 4-0 tapið gegn Egyptalandi í Jeddah í mars vakti mikla gagnrýni heima fyrir. Það hjálpar svo ekki að riðillinn býður upp á verkefni gegn þjóðum á borð við Spán og Úrúgvæ strax í byrjun móts. Samt væri varasamt að afskrifa Sáda alveg. Á HM 2022 kom liðið öllum í opna skjöldu þegar það lagði verðandi heimsmeistara Argentínu að velli í fyrsta leik. Þetta lið hefur sýnt að þegar allt smellur saman getur það strítt nánast hverjum sem er. Raunhæft mat er þó að Sádi-Arabía fari inn í mótið með fleiri spurningar en svör. Þjálfaraskiptin, brothættur varnarleikur og erfiður riðill gera verkefnið flókið, jafnvel ómögulegt.

Þjálfarinn: Grikkinn Georgios Donis tók við liðinu núna stuttu fyrir HM eftir óvissu og umrót í kringum hinn franska Hervé Renard. Grikkinn er reynslumikill þjálfari sem hefur komið víða við, meðal annars hjá AEK Aþenu, APOEL, Panathinaikos og í Sádi-Arabíu með Al-Wehda og Al-Fateh. Donis þekkir því bæði svæðið og leikmannahópinn ágætlega, en tíminn til að setja sitt mark á liðið er mjög takmarkaður.

Lykilmaður: Salem Al-Dawsari (Al-Hilal) er andlit þessa Sádi-arabíska liðs og maðurinn sem getur breytt leikjum á augabragði. Kantmaðurinn hjá Al-Hilal skoraði sigurmarkið gegn Argentínu á HM 2022 og er enn stærsta sóknarógn þjóðarinnar. Hann er sá leikmaður sem andstæðingar Sáda þurfa helst að passa sig og sá leikmaður sem Sádarnir treysta mest á þegar reynir á.

Gaman að fylgjast með: Saud Abdulhamid (Lens) er eini leikmaðurinn í hópnum sem spilar utan heimalandsins en hann er núna á mála hjá Lens í Frakklandi eftir að hafa verið keyptur til ítalska stórliðsins Roma sumarið 2024. Ef Sádi-Arabía ætlar að skapa sér mörg færi á mótinu gætu hlaup og orkustig hægri bakvarðarins orðið stór þáttur í því.

Leikir á HM: Úrúgvæ í Miami (15. júní); Spánn í Atlanta (21. júní); Grænhöfðaeyjar í Houston (26. júní).

39. Úsbekistan
Eru í 50. sæti á heimslistanum.

Úsbekistan verður á HM í fyrsta sinn í sögu sinni og margir myndu segja að það sé löngu tímabært. Fótboltaáhuginn í landinu er gígantískur og yngri landslið þjóðarinnar hafa sent sterk skilaboð undanfarin ár með góðum árangri á stórmótum, meðal annars með sigrum gegn liðum á borð við England og Króatíu á heimsmeistaramóti U17 landsliða. Ólíkt mörgum öðrum HM-liðum byggir Úsbekistan að mestu á leikmönnum úr heimadeildinni og því er þetta lið sem er dálítil ráðgáta fyrir marga áhorfendur. Undirbúningurinn fyrir mótið hefur líka verið upp og ofan. Þrátt fyrir 3-1 sigur gegn Gabon voru varnarmistök áberandi og þjálfarinn Fabio Cannavaro viðurkenndi sjálfur að skortur á stöðugleika væri áhyggjuefni fyrir HM. Markalaust jafntefli gegn Venesúela gaf þó jákvæðari teikn.Það er ákveðin spenna í kringum þetta lið. Manchester City-maðurinn Abdukodir Khusanov heldur uppi varnarleiknum eftir frábært tímabil í ensku úrvalsdeildinni og nokkrir ungir leikmenn hafa bankað á dyrnar. Úsbekar fara inn í mótið sem óskrifað blað, lið sem fáir þekkja vel en gæti reynst erfitt viðureignar þegar á hólminn er komið.

Þjálfarinn: Fabio Cannavaro þarf vart kynningu. Hann var auðvitað fyrirliði heimsmeistara Ítalíu árið 2006, vann Gullknöttinn sama ár og var einn besti varnarmaður sinnar kynslóðar. Nú snýr hann aftur á HM, tuttugu árum eftir að hafa lyft bikarnum í Berlín en að þessu sinni sem þjálfari Úsbekistan á fyrsta heimsmeistaramóti þjóðarinnar. Cannavaro hefur ekki náð sömu hæðum sem þjálfari og sem leikmaður - hann hefur mest þjálfað í Asíu - en þetta er stórt svið fyrir hann.

Lykilmaður: Abdukodir Khusanov (Manchester City) er stærsta nafnið í liðinu, án nokkurs vafa. Miðvörðurinn hjá Manchester City hefur vakið mikla athygli þrátt fyrir ungan aldur og var valinn besti leikmaður FIFA Series-mótsins í vor. Sterkur varnarmaður með mikinn hraða og yfirvegun sem verður gríðarlega mikilvægur ef Úsbekistan ætlar að halda aftur af sterkari andstæðingum. Átti eins og fyrr segir mjög gott tímabil í enska boltanum og kemur því með sjálfstraust inn í mótið.

Gaman að fylgjast með: Eldor Shomurodov (Istanbul Basaksehir) er framherji sem hefur spilað meðal annars á Ítalíu með Roma og Cagliari og er einn reyndasti leikmaður Úsbekistan. Hann er markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi og sá sem líklegastur er til að sjá til þess að fyrsta HM þjóðarinnar verði ekki bara minning um góða varnarvinnu. Hann kemur inn í mótið eftir mjög gott tímabil í Tyrklandi þar sem hann gerði 22 mörk í 34 deildarleikjum.

Leikir á HM: Kólumbía í Mexico City (17. júní); Portúgal í Houston (23. júní); Kongó í Atlanta (27. júní).

38. Túnis
Eru í 44. sæti á heimslistanum.

Túnisbúar eru orðnir fastagestir á HM en stærsta hindrunin er enn á veginum: Þjóðin hefur aldrei komist upp úr riðlakeppninni þrátt fyrir sex tilraunir. Túnis hefur þó sýnt síðustu ár að þeir geta verið óþægilegir andstæðingar og unnið leiki á stærsta sviðinu, eins og sigrarnir á Frakklandi og Ástralíu á síðustu tveimur heimsmeistaramótum sýna. Undankeppnin fyrir HM 2026 var nánast gallalaus. Túnis vann níu af tíu leikjum sínum og fékk ekki á sig eitt einasta mark. Vissulega kom það gegn slökum andstæðingum á borð við Namibíu og Líberíu en aginn og skipulagið voru engu að síður áberandi. Eftir Afríkukeppnina tók Sabri Lamouchi við liðinu og hefur reynt að hrista aðeins upp í hlutunum. Nýr markvörður, breytingar í miðri vörninni og ný andlit hafa fengið tækifæri, þar á meðal Rani Khedira, bróðir fyrrum heimsmeistarans Sami Khedira, sem ákvað að taka slaginn með Túnis þrátt fyrir blendnar viðtökur hjá sumum stuðningsmönnum þar sem hann hefur áður hafnað því að spila fyrir þjóðina. Túnis verður líklega ekki liðið sem hlutlausir áhorfendur hlaupa fyrst að sjónvarpinu til að sjá en það verður áfram vel skipulagt, agað og erfitt að brjóta niður. Spurningin er einfaldlega hvort það dugi loksins til að brjóta bölvunina og komast upp úr riðlinum.

Þjálfarinn: Sabri Lamouchi tók við Túnis eftir síðustu Afríkukeppni og hefur ekki verið feiminn við að breyta hlutunum. Þessi fyrrum landsliðsmaður Frakka - sem á foreldra frá Túnis - á að baki fjölbreyttan þjálfaraferil hjá félögum á borð við Rennes, Nottingham Forest og Cardiff, auk þess sem hann stýrði áður landsliði Fílabeinsstrandarinnar. Lamouchi vill sjá ferskari nálgun hjá Túnis, án þess þó að fórna skipulaginu sem hefur lengi verið helsti styrkur liðsins.

Lykilmaður: Ellyes Skhiri (Eintracht Frankfurt) er mótorinn á miðju Túnis og líklega mikilvægasti leikmaður liðsins. Miðjumaðurinn sem spilar með Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni er vinnusamur, agaður og les leikinn afar vel. Hann sér um að halda jafnvægi á liðinu, vinna boltann til baka og tengja saman varnar- og sóknarleikinn.

Gaman að fylgjast með: Hannibal Mejbri (Burnley) er líklega sá leikmaður Túnis sem hlutlausir stuðningsmenn þekkja best. Miðjumaðurinn, sem kom upp úr akademíu Manchester United, spilar með mikilli orku og er líklega nokkuð góður tæknilega. Þegar Hannibal er í stuði getur hann gefið spilamennsku Túnis aukinn neista. Hárið hans mun líka vekja athygli á mótinu í sumar enda er hann hárprúðari en flestir.

Leikir á HM: Svíþjóð í Monterrey (14. júní); Japan í Monterrey (20. júní); Holland í Kansas City (25. júní).

37. Katar
Eru í 55. sæti á heimslistanum.

Katar er komið aftur á HM fjórum árum eftir mjög svo erfiða reynslu á heimamóti sínu. Gestgjafarnir árið 2022 töpuðu öllum þremur leikjum sínum í riðlakeppninni og skoruðu aðeins eitt mark sem er ein slakasta frammistaða gestgjafaþjóðar í sögu heimsmeistaramótsins. Það eitt og sér segir þó ekki alla söguna um þetta lið. Fyrir mótið 2022 vann Katar Asíukeppnina og varði svo titilinn ári eftir HM sem sýnir að þetta er lið sem kann vel að ná árangri á sínu heimssvæði. Að þessu sinni þurfti Katar líka að fara í gegnum alvöru undankeppni í stað þess að eyða árum í vináttuleiki sem gestgjafi, sem gæti reynst dýrmæt reynsla. Leiðin á HM var þó tæp og undirbúningurinn hefur verið óvenjulegur. Julen Lopetegui hefur átt erfitt verkefni við að byggja upp skriðþunga og vináttuleikir gegn Argentínu og Serbíu féllu niður vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum. Þjálfarateymið hefur því að mestu þurft að nýta tímann á æfingasvæðinu fremur en í leikjum. Katar verður áfram talið meðal líklegustu liðanna til að falla úr leik í riðlakeppninni en miðað við árangurinn í Asíu undanfarin ár væru samt mistök að útiloka liðið áður en mótið hefst.

Þjálfarinn: Julen Lopetegui er einn stærsti þjálfaraprófíllinn í þessum hluta kraftröðunarinnar. Spánverjinn hefur meðal annars stýrt Sevilla, Wolves og West Ham. Og jú auðvitað Real Madrid og spænska landsliðinu. Hann tók við Katar með það verkefni að gera liðið samkeppnishæfara á alþjóðavísu. HM 2026 verður stórt próf á hvort honum hafi tekist það.

Lykilmaður: Akram Afif (Al Sadd) er stjarna Katar og maðurinn sem flestallt snýst um í sóknarleiknum. Kantmaðurinn hefur verið einn besti leikmaður Asíu undanfarin ár og lék lykilhlutverk þegar Katar vann Asíukeppnina fyrir nokkrum árum. Hann er fljótur, skapandi og sá leikmaður sem líklegastur er til að búa til eitthvað úr engu. Eins og Mejbri hjá Túnis er hann líka með fínasta hár og vekur athygli inn á vellinum.

Gaman að fylgjast með: Hassan Al-Haydos (Al Sadd) er lifandi goðsögn í katörskum fótbolta og einn leikjahæsti landsliðsmaður heims með 184 landsleiki. Sóknarsinnaði miðjumaðurinn hefur verið andlit landsliðsins í meira en áratug, var fyrirliði á HM 2022 og hefur safnað gríðarlegri reynslu á stærstu sviðum Asíufótboltans. Ef þetta verður hans síðasta stóra mót verður áhugavert að sjá hvort hann geti dregið fram stórt augnablik fyrir Katar.

Leikir á HM: Sviss í San Francisco (13. júní); Kanada í Vancouver (18. júní); Bosnía í Seattle (24. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner