Fotbolti.net
19.07.26 - 18:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Sterkur sigur hjá Þór/KA

Besta deild kvenna: Sterkur sigur hjá Þór/KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þór/KA 2 - 1 ÍBV
1-0 Erin Flurey ('7 )
2-0 Bríet Jóhannsdóttir ('47 )
2-1 Avery Mae Vanderven ('57 )
Lestu um leikinn
Þór/KA vann sterkan sigur á ÍBV í Bestu deild kvenna í dag. Þór/KA komst yfir snemma leiks þegar Erin Flurey skoraði eftir laglegan sprett frá miðjuhringnum.

Allison Clark komst í færi eftir slaka markspyrnu frá Alessandra Augur en Augur sá við henni.

Bríet Jóhannsdóttir tvöfaldaði forystu Þórs/KA í upphafi seinni hálfleiks. Hún stýrði boltanum í netið eftir skot frá Huldu Ósk Jónsdóttir.

Eyjakonur minnkuðu muninn þegar rúmlega hálftími var til loka venjulegs leiktíma. Avery Mae Vanderven skallaði boltan í netið eftir hornspyrnu.

Þóra Björg Stefánsdóttir var nálægt því að jafna metin en skallaði boltann rétt framhjá.

Birgitta Rún Finnbogadóttir hefði getað innsiglað sigur Þórs/KA í lokin þegar hún slapp ein í gegn en skaut framhjá. Það kom ekki að sök þar sem sigur Þórs/KA var í höfn.

Þór/KA skaust af botnsætinu upp í 7. sæti með 12 stig eftir 12 umferðir. ÍBV er í 4. sæti með 20 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik16+2636
2FH16+2333
3Stjarnan16+626
4ÍBV16-324
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þróttur R.16-321
7Þór/KA16-318
8Valur16-1216
9Fram16-1716
10Víkingur R.16-1514
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.