Fotbolti.net
19.07.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Roma undirbýr nýtt tilboð í Summerville

Roma undirbýr nýtt tilboð í Summerville
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Roma er að undirbúa nýtt og endurbætt tilboð í Crysencio Summerville, leikmann West Ham United.
West Ham hafnaði í gær 39 milljóna punda tilboði Roma í Summerville.

Summerville, sem er 24 ára, var ein af stjörnum hollenska landsliðsins á HM en hann skoraði tvö mörk og lagði önnur tvö upp.

Hann féll úr ensku úrvalsdeildinni með West Ham í vor og vill komast til nýs félags. Roma leiðir kapphlaupið um vængmanninn og hyggst leggja fram annað tilboð á næstu dögum.

Summerville er sagður mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við Rómverja.

Fjölmörg félög hafa verið orðuð við hann eftir HM. Þar á meðal eru AC Milan, Galatasaray, Chelsea og Manchester United, auk félaga í Sádi-Arabíu og Frakklandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.