Fotbolti.net
19.07.26 - 21:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Engin þjóð fengið fleiri rauð spjöld í úrslitaleikjum HM

Engin þjóð fengið fleiri rauð spjöld í úrslitaleikjum HM
Canon

Mynd: EPA

Engin þjóð hefur fengið fleiri rauð spjöld en Argentína í úrslitaleik í sögu HM.

Það er enn markalaust í leik Spánar og Argentínu í úrslitaleik HM þegar fyrri hálfleik framlengingarinnar er lokið.
Enzo Fernandez fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótatíma í seinni hálfleik venjulegs leiktíma fyrir brot á Pau Cubarsi.

Fernandez er þriðji Argentínumaðurinn í sögunni til að fá rautt spjald í úrslitaleik. Pedro Monzón og Gustavo Dezotti fengu rautt í 1-0 tapi gegn Vestur Þýskalandi árið 1990.

Frakkarnir Marcel Desailly (1998) og Zinedine Zidane (2006) og Hollendingurinn Johnny Heitinga (2010) hafa einnig fengið rautt í úrslitaleik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.