Byrjunarlið Brasilíu og Japans: Óbreytt hjá Brössum - Japan án fyrirliðans

Skoraði tvö gegn Skotum.

Mynd: EPA

Fjórar breytingar á byrjunarliði Japans frá 1-1 jafnteflinu gegn Svíum.

Mynd: EPA

Skoraði tvö gegn Skotum.

Mynd: EPA
Brasilía og Japan eigast við í fyrsta HM leik dagsins. Um er að ræða annan leikinn í 32-liða úrslitum en Kanada varð í gær fyrsta liðið til að tryggja sig áfram í 16-liða úrslitin með sigri á Suður-Afríku.
Flautað verður til leiks í Houston í Texas klukkan 17:00 og búið er að opinbera byrjunarliðin.

Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, heldur liði sínu óbreyttu frá 3-0 sigri gegn Skotlandi síðastliðinn miðvikudag. Vinicius Jr. fór þar á kostum og skoraði tvö mörk.
Neymar er á varamannabekk Brassa en hann kom inn á gegn Skotlandi.
Þá gerir Hajime Moriyasu, þjálfari Japans, fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá 1-1 jafntefli gegn Svíþjóð síðastliðinn fimmtudag.
Fyrirliðinn Kou Itakura, leikmaður Ajax, byrjar á bekknum en hann neyddist til að fara af velli í fyrri hálfleik gegn Svíum sökum meiðsla. Inn í stað Itakura kemur liðsfélagi hans hjá Ajax, Takehiro Tomiyasu.
Brasilía: Alisson; Danilo, Marquinhos, Gabriel; Douglas Santos; Casemiro, B. Guimaraes, Paqueta, Rayan, Cunha, Vinicius
Japan: Suzuki; Tomiyasu, Taniguchi, Ito, Doan, Sano, Kamada, Nakamura, Maeda, Ito, Ueda