Hinn hæfileikaríki Kristall Máni Ingason hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Víkinga.
Þetta staðfestir félagið á sínum samfélagsmiðlum.
Þetta staðfestir félagið á sínum samfélagsmiðlum.
„Kristall Máni hefur spilað sinn seinasta leik með Víking eftir að hafa spilað sinn seinasta leik gegn TNS í evrópukeppni. Kristall kveður okkur Víkinga sem markahæsti leikmaður félagsins í Evrópukeppni og sem Íslands- & bikarmeistari með liðinu," segir í tilkynningu Víkinga.
„Takk fyrir okkur Kristall!"
Hann verður því ekki með liðinu þegar það mætir Stjörnunni í Bestu deildinni á morgun.
Kristall, sem er tvítugur að aldri, er á leið til Noregs þar sem hann gengur í raðir stórliðsins Rosenborg. Hann er búinn að eiga mjög flottan tíma með Víkingum.
Athugasemdir