Fotbolti.net
29.07.26 - 10:19
Elvar Geir Magnússon

Welbeck á leið í læknisskoðun hjá Chelsea og Henderson færist líka nær

Danny Welbeck.

Danny Welbeck.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea er að ganga frá kaupum á hinum 35 ára gamla Danny Welbeck frá Brighton en hann hefur fengið grænt ljós á að fara í læknisskoðun á Brúnni.

Sóknarmaðurinn reynslumikli mun hitta nýja liðsfélaga í æfingaferð í Hong Kong og skrifa undir tveggja ára samning.

Þá segir BBC að miðjumaðurinn Jordan Henderson, 36 ára, sé að vinna í að rifta samningi við Brentford til að geta gengið í raðir Chelsea.

Henderson var með enska landsliðinu á HM og kom við sögu í einum leik í riðlakeppninni.
Af hverju er Chelsea skyndilega að kaupa gamla leikmenn?
TENGT EFNI

Af hverju er Chelsea skyndilega að kaupa gamla leikmenn?

Xabi Alonso nýr stjóri Chelsea vill bæta reynslumiklum leikmönnum inn í hóp sinn en leikmannahópur Chelsea hefur verið sá yngsti í ensku úrvalsdeildinni.

Welbeck er fyrrum leikmaður Manchester United og Arsenal en hann á 90 úrvalsdeildarmörk á ferilskrá sinni í 400 leikjum.
Jordan Henderson.

Jordan Henderson.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.