Fotbolti.net
29.07.26 - 19:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Theodór Ingi með tvennu í endurkomusigri Fylkis

Lengjudeildin: Theodór Ingi með tvennu í endurkomusigri Fylkis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Fylkir 3 - 1 Völsungur
0-1 Elfar Árni Aðalsteinsson ('48 )
1-1 Theodór Ingi Óskarsson ('74 )
2-1 Hlynur Sævar Jónsson ('76 )
3-1 Theodór Ingi Óskarsson ('95 )
Lestu um leikinn
Fylkir vann magnaðan endurkomusigur á Völsungi í Árbæ í kvöld. Elvar Baldvinsson fékk fyrsta færi leiksins fyrir gestina en skotið ekki nægilega gott.

Gestirnir náðu forystunni strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði eftir mikinn vandræðagang í vörn Fylkismanna.

Hann var nálægt því að bæta öðru marki við stuttu síðar en Ólafur Kristófer Helgason varði í horn.

Fylkismenn jöfnuðu metin þegar Theodór Ingi Óskarsson skoraði eftir að hafa fengið nægan tíma til að athafna sig inn í teignum. Hlynur Sævar Jónsson kom síðan Fylki yfir strax í kjölfarið eftir keimlíka sókn.

Theodór Ingi innsiglaði sigur Fylkis þegar hann skoraði í blálokin á opið markið eftir slæm mistök í vörn Völsungs.

Fylkir er á toppnum eins og er með 33 stig eftir 16 umferðir en Völsungur er í næst neðsta sæti með 11 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Fylkir16+1233
2Afturelding14+2231
3Þróttur R.15+1730
4HK16+928
5Njarðvík16+326
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur16-1711
12Ægir16-248
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.