RFS með meiri eignir en Vestri

Albin Mörfelt skoraði eina mark Vestra í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Albin Mörfelt skoraði eina mark Vestra í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Annað kvöld mætir Vestri lettneska liðinu RFS í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Í fyrri leik liðanna bar RFS sigur úr býtum með fjórum mörkum gegn einu marki.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 26. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Útgjöld RFS voru aðeins hærri en tekjurnar þeirra, útgjöldin námu semsagt 1.091 milljónum króna. Til samanburðar voru útgjöld Vestra 299 milljónir króna en af því fóru 178 milljónir króna í launakostnað. Hjá RFS var launakostnaður 538 milljónir króna. Ef litið er á launahlutföll liðanna þá stendur það í 63% hjá Vestra en 53% hjá RFS.
Í efnahagsreikningnum má sjá að eignir RFS eru tæplega tífalt stærri en eignir Vestra. Af þessum 526 milljónum króna sem eignir RFS námu voru 145 milljónir króna handbært fé. Hjá Vestra stóð handbært fé í 10 milljónum króna í árslok 2025. Ef veltufjárhlutföll liðanna eru borin saman má sjá að það er 308% hjá RFS en 55% hjá Vestra.
Það er einnig gífurlegur munur á stöðu eigin fjár liðanna. Hjá RFS var eigið fé neikvætt um 370 milljónir króna á síðasta ári en hjá Vestra var það jákvætt um 15 milljónir króna.

