Maggi: Bregðumst ekki nógu vel við og þeir gengu á lagið

Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding fékk skell í kvöld þegar þeir heimsóttu Þrótt á Avis vellinum. Þróttur hafði sætaskipti við Aftureldingu eftir úrslitin í dag og sitja Mosfellingar í öðru sætinu um verslunarmannahelgina.
„Mjög furðulegur leikur að mínu mati" sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir tapið í kvöld.
„Við erum miklu betri fyrstu 25 mínúturnar og finnst í raun bara tímaspursmál hvenær við myndum skora fyrsta markið"
„Svo er hornspyrna sem að Þróttur á sem er ein af þeirra fyrstu sóknum í leiknum og dómarinn dæmir vítaspyrnu. Ef hann ákveður að dæma vítaspyrnu þarna þá þarf hann að dæma vítaspyrnu í hverju einasta horni því að menn takast á og þarna finnst mér hann bara færa þeim vítaspyrnu á silfurfati"
„Eftir það þá bregðumst við ekki nógu vel við og þeir gengu á lagið og ganga svona þannig séð frá þessum leik í fyrri hálfleik en ég er ánægður með trúnna í strákunum og við héldum áfram allan tímann og mér fannst síðustu tuttugu mínúturnar, þó leikurinn hafi svolítið verið búin að því leytinu til"
„Ég var ánægður með að menn héldu áfram og mér fannst við vera sterkari þá og skorum frábært mark og mér fannst við vera ofan á þar þannig ég var ánægður með svarið þar og menn héldu áfram allan tíman og höfðu trú og það er það sem við stöndum fyrir þannig ég tek það út úr þessu" sagði Magnús Már Einarsson.
Nánar er rætt við Magnús Már Einarsson þjálfara Aftureldingar í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 16 | +20 | 33 |
| 2 | Fylkir | 16 | +12 | 33 |
| 3 | Afturelding | 15 | +19 | 31 |
| 4 | HK | 16 | +9 | 28 |
| 5 | Njarðvík | 16 | +3 | 26 |
| 6 | Grótta | 14 | +1 | 22 |
| 7 | Vestri | 15 | -5 | 21 |
| 8 | Leiknir R. | 15 | -4 | 19 |
| 9 | ÍR | 16 | -9 | 16 |
| 10 | Grindavík | 15 | -5 | 14 |
| 11 | Völsungur | 16 | -17 | 11 |
| 12 | Ægir | 16 | -24 | 8 |
