Svekktur með dómarann - „Þurfa að læra á myrku listir fótboltans"

Hörður Snævar Jónsson þjálfari Dalvík/Reynir

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Hörður Snævar Jónsson þjálfari Dalvík/Reynir

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Dalvík/Reynir tapið í dag 2-1 fyrir Selfossi í 15.umferð 2.deildar karla. Fjörugur leikur á JÁVERK-vellinum á Selfossi en Dalvíkur liðið barðist vel og meiga vera svekktir að hafa ekki fengið eitthvað fyrir sína frammistöðu í kvöld.
Hörður Snævar eða Höddi þjálfari Dalvíkur var til taks í viðtal rétt eftir leikinn.
„Fannst við miklu betra liðið á vellinum, nýttum ekki færin okkar og svo verður að segjast einsog er, að dómari leiksins hefði í tvígang átt að dæma vítaspyrnu, eitt atvikið er alveg 100% víti en hitt vilja allavega strákarnir mínir meina að sé víti. Fúlt að fá það ekki en þú veist, Selfoss tekur þrjú stigin og um það snýst þetta."
„Þungt að tapa hérna í dag þegar að leikmenn leggja líf og sál í þetta, gefum þeim bara tvö mörk, algjörlega óþarfa mörk að fá á sig. Hefur verið svolítið stefið í síðustu leikjum sem við höfum verið að tapa. Þurfum að finna út úr því en mikið af ungum leikmönnum, frábærir fótboltamenn en þurfa kannski að læra svona "dark arts" í fótboltanum til þess að klára svona leiki."
„Verð að segja, þegar sérstaklega þegar það er brotið á Atla, boltinn er fyrir framan hann og það er bara stigið á kálfann á honum inn í teig. Skrítin tón hjá dómaranum allan leikinn, það var ekkert bara hjá okkur, flautar á einhvern algjöran tittlingaskít. Menn máttu ekki anda ofan á hvorn annan þá var hann búin að flauta. Og miðað við línuna þá hefði hann átt að dæma víti þarna, hann var búin að dæma á allt í þessum leik."
Eina markið fyrir Dalvík skoraði Aires Sousa og það var glæsilegt mark upp úr hornspyrnu, hann spilaði allan leikinn í dag en var utan hóps í síðasta leik Dalvíkur. Hörður um hann og fjarverju hans í síðasta leik: „Já, hann getur skorað svona mörk, flinkur í þessum hlutum. Það var innanhúsvandamál sem voru tækluð, hann þurfti að sitja hjá í einn leik, erum búnir að tækla það. Hann hefði getað gefist upp og mótmælt því sem við gerðum síðustu helgi, eða svara svona einsog hann gerði í dag."
„Verðum að hugsa að nýta þessa frammistöðu þó hún hafi ekki skilað neinu. Frammistöðurnar undan farið ekki á þessu "leveli" og mér fannst Selfoss gefa okkur fullt af sénsum í dag. Það er eitt þarna færi sem að verður erfitt að hugsa um í kvöld þegar maður fer á koddann, en frammistaðan góð en úrslitin ekki. Það er ekki hægt að tala endalaust um það, þurfum að fara vinna helvítis fótboltaleiki."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér í spilaranum að ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 15 | +17 | 30 |
| 2 | Selfoss | 15 | +7 | 29 |
| 3 | Kári | 14 | +15 | 24 |
| 4 | Fjölnir | 14 | +5 | 21 |
| 5 | Víkingur Ó. | 14 | -4 | 21 |
| 6 | Kormákur/Hvöt | 14 | +11 | 20 |
| 7 | Dalvík/Reynir | 15 | -1 | 20 |
| 8 | Magni | 15 | -14 | 18 |
| 9 | KFA | 15 | +3 | 17 |
| 10 | KFG | 15 | -24 | 14 |
| 11 | Þróttur V. | 14 | -7 | 13 |
| 12 | Hvíti riddarinn | 14 | -8 | 13 |
