Fotbolti.net
29.08.18 - 21:42
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Bestur í 15. umferð: Erum í fínni stöðu en það þarf að klára þetta

Auglýsing
Eiður hefur verið hrikalega öflugur fyrir Valsmenn.

Eiður hefur verið hrikalega öflugur fyrir Valsmenn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Aron Sigurbjörnsson var maður leiksins þegar Stjarnan og Valur gerðu 1-1 jafntefli í stórleik Pepsi-deildarinnar í kvöld.

Leikurinn tilheyrði 15. umferð deildarinnar en Eiður er jafnframt leikmaður umferðarinnar.

Stigið gerði meira fyrir Valsmenn sem eru nú með málin í sínum höndum þegar fjórar umferðir eru eftir á meðan Stjörnumenn þurfa að klára sitt og vona að ríkjandi Íslandsmeistarar misstígi sig.
„Þetta voru tvö sterk fótboltalið að mætast. Þetta var bara skemmtilegt,\" sagði Eiður eftir leikinn. Hann var sammála því að stigið gerði meira fyrir Val en heimamenn.

„Það er samt enn nóg eftir. Það eru tólf stig eftir, við erum í fínni stöðu en það þarf að klára þetta. Ef við gerum okkar verðum við Íslandsmeistarar. Það er ekki flóknara en það.\"

Eiði fannst jafntefli sanngjörn niðurstaða miðað við hvernig leikurinn spilaðist. „Já ég held það. Það var ekki mikið um færi og sterkur varnarleikur hjá báðum liðum.\"

Það voru rúmlega 1.700 manns á leiknum í kvöld og að sögn Eiðs var mjög skemmtilegt að spila leikinn.

„Það var geggjað, flóðljós og mikil læti í fólkinu. Umgjörðin hjá Stjörnunni var til fyrirmyndar.\"

Fyrri leikmenn umferðarinnar
Leikmaður 18. umferðar - Kennie Chopart (KR)
Leikmaður 17. umferðar - Birkir Már Sævarsson (Valur)
Leikmaður 16. umferðar - Patrick Pedersen (Valur)
Leikmaður 15. umferðar - Eiður Aron Sigurbjörnsson (Valur)
Leikmaður 14. umferðar - Ari Leifsson (Fylkir)
Leikmaður 13. umferðar - Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Leikmaður 12. umferðar - Halldór Páll Geirsson (ÍBV)
Leikmaður 11. umferðar - Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
Leikmaður 10. umferðar - Kennie Chopart (KR)
Leikmaður 9. umferðar - Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Leikmaður 8. umferðar - Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)
Leikmaður 7. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Almarr Ormarsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar - Sito (Grindavík)
Leikmaður 4. umferðar - Aron Jóhannsson (Grindavík)
Leikmaður 3. umferðar - Emil Ásmundsson (Fylkir)
Leikmaður 2. umferðar - Gísli Eyjólfsson (Breiðablik)
Leikmaður 1. umferðar - Sveinn Aron Guðjohnsen (Breiðablik)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.