Hálfleikurinn í úrslitaleiknum gæti orðið 25 mínútur - Bandaríski þjóðsöngurinn fyrir leik

Shakira og Gianni.

Mynd: EPA

Shakira og Gianni.

Mynd: EPA
Búist er við því að hálfleikurinn í úrslitaleik HM muni standa yfir í 20-25 mínútur. Þar inni verður ellefu mínútna hálfleikssýning þar sem Shakira, Madonna, Justin Bieber, Chris Martin og BTS leika fyrir dansi.
FIFA er þar að beygja reglur leiksins þar sem segja að leikmenn eigi að fá hálfleikshlé sem er ekki lengra en 15 mínútur.
Úrslitaleikurinn verður á MetLife leikvangnum í New Jersey klukkan 19 á sunnudag og þar mun Spánn mæta Englandi eða Argentínu.

TENGT EFNI
Justin Bieber, Madonna og BTS stíga á svið
Búið er að setja saman heljarinnar dagskrá í kringum leikinn og athygli vekur að fyrir leik verða spilaðir þrír þjóðsöngvar því Jennifer Hudson mun kyrja bandaríska þjóðsönginn fyrir leik. Ekki er ólíklegt að herþotur muni svo fljúga yfir leikvanginn.
Einum og hálfum tíma fyrir leik hefst dagskráin á vellinum með sérstakri lokahátíð mótsins en meðal þeirra sem munu koma við sögu eru Tom Cruise, Robbie Williams, iShowSpeed, Nicole Scherzinger og Laura Pausini.

Shakira kom fram á setningarathöfn HM.

Mynd: EPA