Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 29. ágúst 2022 17:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísbirninum var slátrað á Futsal Cup
Mynd: KSÍ
Ísbjörninn hefur lokið leik í forkeppni Futsal Cup. Þeir tóku þar þátt fyrir Íslands hönd.

Liðið var þar í riðli með Kampuksen Dynamo frá Finnlandi, KMF Titograd frá Svartfjallalandi og FC Encamp frá Andorra. Riðillinn fór fram í Podgorica á Svartfjallalandi.

Ísbjörninn tapaði öllum leikjum sínum í riðlinum með stórum mun, en það var Kampuksen Dynamo sem fór áfram í næstu umferð með fullt hús stiga.

Úrslit leikja:
Kampuksen Dynamo - Ísbjörninn 17-0
KMF Titograd - Ísbjörninn 8-1
Ísbjörninn - FC Encamp 2-6
Athugasemdir
banner