Fotbolti.net
29.08.23 - 23:24
Sverrir Örn Einarsson

Gunnar Magnús: Við ætlum okkur þetta seinna sæti það er engin spurning

Auglýsing
Gunnar Magnús Jónsson

Gunnar Magnús Jónsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Ég vill bara byrja á því að óska Víkingum til hamingju með sigur í deildinni og bikarmeistaratitilinn. Þær eru vel að þessu komnar. það var geggjað hérna í kvöld, yfir þúsund manns á leiknum og er maður hálf hrærður yfir því og gaman að taka þátt í þessu. Vissulega eru úrslitin þó vonbrigði, við ætluðum okkur meira hér í kvöld.“
Voru orð Gunnars Magnús Jónssonar þjálfara Fylkis sem mátti gera sér að góðu að sjá lið sitt tapa 4-2 gegn Víkingum í kvöld sem með sigrinum tryggðu sér sæti í Bestu deildinni að ári.
Þrátt fyrir tapið er lið Fylkis enn í bílstjórasætinu um annað sæti deildarinnar og þar með að fylgja liði Víkinga upp um deild. Markmið Gunnars og Fylki því væntanlega skýr að klára sitt og fylgja Víkingum upp í Bestu deildina?

„Já klárlega, VIð gerum okkur grein fyrir því að við þurfum bara að klára okkar verkefni,.Við eigum markatölu á HK og svo fylgir Grótta í humátt á eftir og verður þetta hörkubarátta í þessum síðustu tveimur leikjum á milli þessara þriggja liða. En við ætlum okkur þetta seinna sæti það er engin spurning.“

Gunnar hefur þjálfað um árabil í kvennaknattspyrnu á Íslandi og meðal annars verið með lið Keflavíkur í efstu deild. Fyrir hann og liðið að leika fyrir framan þúsund áhorfendur í deildarleik hlýtur að hafa verið sérstakt.

„Þetta er auðvitað bara frábært og einhver í kallkerfinu að kynna að þetta sé fjölmennasti deildarleikur á Íslandi, Sem að ef rétt er er auðvitað hálf ruglað í næst efstu deild. En frábært og virkilega skemmtilegt að taka þátt í þessu og vonandi að önnur lið og stuðningsmenn þeirra fylgi þessu fordæmi og hjá okkur við eigum leik á laugardag, hörkuleik og ég hvet alla Fylkismenn til að fylla Lautina og styðja stelpurnar.“

Sagði Gunnar Magnús en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.