Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fös 29. ágúst 2025 14:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valgeir Valgeirs spáir í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Valgeir Valgeirsson.
Valgeir Valgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Orri, veikasti Chelsea maður landsins.
Ágúst Orri, veikasti Chelsea maður landsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mun Mbeumo skora?
Mun Mbeumo skora?
Mynd: EPA
Valgeir spáir Arsenal stórsigri gegn Liverpool.
Valgeir spáir Arsenal stórsigri gegn Liverpool.
Mynd: EPA
Þriðja umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer af stað í hádeginu á morgun. Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, spáir í leikina sem eru framundan en hann og liðsfélagarnir tryggðu sig inn í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í gær.

Chelsea 4 - 0 Fulham (11:30 á morgun)
Ágúst Orri, veikasti Chelsea stuðningsmaður landsins, sagði mér að þetta myndi fara 4-0 og ég treysti honum fyrir því.

Man Utd 1 - 1 Burnley (14:00 á morgun)
Félagi minn Mbuemo mun skora en það mun ekki duga til þar sem Man Utd eru ömurlegir og vita ekki hvernig á að vinna leiki lengur.

Sunderland 2 - 4 Brentford (14:00 á morgun)
Granit Xhaka verður með aukspyrnumark af 35 metrum og red card. Rauða spjaldið gefur mínum mönnum von og þeir klára leikinn auðveldlega.

Tottenham 0 - 3 Bournemouth (14:00 á morgun)
Spurs hafa byrjað deildina með heppni og núna mun koma í ljós að þeir geta ekkert. Nökkvi Snær, harðasti Bournemouth maðurinn, mun fara á Auto og fagna eftir þennan leik á flöskuborði.

Wolves 0 - 0 Everton (14:00 á morgun)
Þetta segir sig sjálft. Ömurlegur leikur.

Leeds 1 - 4 Newcastle (16:30 á morgun)
Fyrsti sigur Newcastle á tímabilinu mun koma gegn Leeds. Barnes er að koma í liðið mitt í Fantasy þannig ætli hann fari ekki út af á 59. mínútu og með gult spjald.

Brighton 3 - 4 Man City (13:00 á sunnudag)
Skemmtilegasti leikur umferðarinnar þar sem City tekur sigurinn. Alvöru tiki taka bolti hjá báðum liðum og fullt af færum. Enginn má missa af þessum leik.

Nottingham Forest 2 - 0 West Ham (13:00 á sunnudag)
West Ham ömurlegt lið og munu falla í ár ef Potter verður ekki rekinn sem fyrst. Forest eru reyndar líka ömurlegir en West Ham eru bara verri.

Liverpool 0 - 5 Arsenal (15:30 á sunnudag)
Allir halda að þetta sá stórleikur umferðarinnar en það er ekki rétt. Liverpool heldur að þetta verði walk in the park því Saka, besti leikmaður deilarinnar, er ekki með en það sem þeir vita ekki er að Arsenal er með Madueke sem mun cooka versta signing sumarsins, Kerkez. Síðan mun Eze syna mönnum að hann var seinasta puslið sem mun tryggja titilinn fyrir Arsenal. Ásgeir Helgi Orrason áttar sig eftir þennan leik að hann tapar bettinu sínu og millifærir á mig 500.000 þúsund.

Aston Villa 4 - 1 Crystal Palace (18:00 á sunnudag)
Minn maður Rogers mun vakna til lífsins í þessum leik og sýna að hann á heima í betra liði.

Fyrri spámenn:
Martin Hermanns (5 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner