Besta deild kvenna: Ótrúlegur endurkomu sigur hjá Fram - Víkingur R. með þægilegan sigur
Iðnaðarsigur hjá Fram

Sara Svanhildur Jóhannsdóttir tryggði Fram stigin þrjú

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara Svanhildur Jóhannsdóttir tryggði Fram stigin þrjú

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveimur leikjum var að ljúka í Bestu deild kvenna þar sem Fram og Víkingur R. sóttu virkilega mikilvæg stig sem setja mikla spennu í neðri hlutann.
Fram tók á móti Stjörnunni í mikilvægum leik fyrir lokasprettinn í deildinni. Fanney Lísa Jóhannesdóttir kom Stjörnunni yfir á 7. mínútu eftir fasta sendingu inn á teiginn frá Huldu Hrund, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir tvöfaldaði svo forustuna á 18. mínútu þar sem hún fékk bolta frá Birnu Jóhannsdóttur á fjærstöngina og kom boltanum í netið. Fram minnkaði svo muninn skömmu seinna með marki frá Öldu Ólafsdóttur sem potaði boltanum inn eftir mikinn darraðadans inni í teig Stjörnunnar og því staðan í hálfleik 1-2 fyrir Stjörnunni. Það bar svo aftur til tíðinda á 86. mínútu þar sem Alda Ólafsdóttir var aftur á ferðinni og núna með skalla eftir hornspyrnu og jafnaði leikinn fyrir Fram en Fram voru ekki hættar og skoraði Sara Svanhildur Jóhannsdóttir sigurmark á 90. mínútu og lokatölur 3-2 fyrir Fram eftir frábærar lokamínútur.
Fram 3 - 2 Stjarnan
0-1 Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('7 )
0-2 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('18 )
1-2 Alda Ólafsdóttir ('23 )
2-2 Alda Ólafsdóttir ('86 )
3-2 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('90 )
Víkingur Reykjavík tóku á móti Grindavík/Njarðvík og þurftu heimakonur á sigri að halda fyrir lokasprettinn í neðri hlutanum.
Víkingar byrjuðu leikinn vel og kom Bergdís Sveinsdóttir heimakonum yfir á 17. mínútu, skömmu seinna kom Áslaug Dóra Víkingi í 2-0 eftir mikið klafs inn í teig sem endaði með því að hún náði að pota inn marki og staðan í hálfleik 2-0 fyrir Víkingi. Bergdís Sveinsdóttir var svo aftur á ferðinni 68. mínútu þar sem Jasmín Erla senti Bergdísi eina í gegn og kláraði Bergdís færið vel og tryggði þar með stigin þrjú fyrir Víkinga.
Víkingur R. 3 - 0 Grindavík/Njarðvík
1-0 Bergdís Sveinsdóttir ('17 )
2-0 Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir ('22 )
3-0 Bergdís Sveinsdóttir ('68 )

