29.08.26 - 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Mbaye í læknisskoðun um helgina

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fjölmiðlar á Englandi eru sammála um að Ibrahim Mbaye sé að ganga til liðs við Aston Villa úr röðum Paris Saint-Germain.

TENGT EFNI
Skotmark Liverpool fer til Villa
Aston Villa borgar um 55 milljónir evra til að kaupa táninginn sem var einnig orðaður við Liverpool í sumar.
Mbaye er 18 ára gamall og hefur þrátt fyrir ungan aldur nú þegar spilað 15 landsleiki fyrir Senegal, auk þess að eiga 41 leik að baki fyrir PSG sem hefur orðið Evrópumeistari síðustu tvö ár í röð.
Mbaye leikur sem kantmaður og er með tvö ár eftir af samningi sínum við PSG. Hann skiptir um félag í leit að meiri spiltíma og mögulegt er að PSG haldi endurkaupsákvæði.
Táningurinn fer í læknisskoðun hjá Aston Villa um helgina.