Fotbolti.net
29.08.26 - 11:15
Ívan Guðjón Baldursson

Selja Gakpo ef þeir fá nýjan kantmann

Selja Gakpo ef þeir fá nýjan kantmann
Canon

Mynd: EPA

Hollenski kantmaðurinn Cody Gakpo er eftirsóttur af Tottenham og Manchester City en Liverpool ætlar ekki að selja hann án þess að finna verðugan mann til að fylla í skarðið fyrst.
Koma Barcola opnar dyrnar fyrir Gakpo að fara
TENGT EFNI

Koma Barcola opnar dyrnar fyrir Gakpo að fara

Bradley Barcola er á leið til Liverpool og eru einhverjir fjölmiðlar sem segja að þá geti Gakpo verið seldur, en svo er ekki. Fabrizio Romano segir að Liverpool þurfi að kaupa annan nýjan kantmann til þess að geta selt Gakpo.

Ismaïla Sarr og Yankuba Minteh eru meðal leikmanna sem hafa verið nefndir til sögunnar sem mögulegir arftakar fyrir Gakpo, sem átti mjög góðan fyrsta keppnisleik undir stjórn Andoni Iraola um síðustu helgi. Hann skoraði í 2-2 jafntefli á útivelli gegn Newcastle United.

Rio Ngumoha, Víctor Munoz og Federico Chiesa eru kantmennirnir í hóp hjá Liverpool. Þar að auki geta framherjarnir Alexander Isak og Hugo Ekitike spilað úti á kanti rétt eins og Dominik Szoboszlai og Florian Wirtz.

Ná samkomulagi um kaupverð fyrir Barcola
TENGT EFNI

Ná samkomulagi um kaupverð fyrir Barcola

Selja Gakpo ef þeir fá nýjan kantmann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.