Fotbolti.net
29.09.17 - 20:43
Hulda Mýrdal

Edda Garðars: Hvað getum við gert til að gera KR að stórveldi?

Auglýsing
Edda Garðars: Hvað getum við gert til að gera KR að stórveldi?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Edda þjálfari KR hafði þetta að segja eftir 3-0 tap fyrir Val í kvöld:
<i>\"Við vorum sofandi svona fyrstu tíu mínúturnar. Svo fannst mér við bara vera ágætar út leikinn.\" </i>
Hvernig fannst þér tímabilið í heild?

\"Tímabilið í heild hefur verið mjög erfitt vestur frá. Það hafa skiptast á skin og skúrir hjá okkur einsog hjá öðrum liðum, með meiðsli og annað. Það var ljóst frekar snemma á tímabilinu að það væri markmiðið að halda okkur uppi. Mér fannst við spila fleiri góða leiki en slæma miða við spilamennsku að gera, þó að úrslitin hafi ekki verið með okkur.\"

KR er stórveldi. Hvað finnst þér þurfa að gerast í KR svo komi aftur í top 3 eða top 4?

\"Hvað getum við gert til að gera KR aftur að stórveldi. Það er búið að vera að vinna í því jafnt og stöðugt undanfarin ár vestur frá að bæta í þjálfun og smala krökkum í að koma í fótbolta. Við erum búin að fá yfirþjálfara karla og kvenna megin og verið að vinna í því að byggja uppalda leikmenn.\"

Nánar er rætt við Eddu í sjónvarpinu hér að ofan um framhaldið hjá henni, uppbyggingu í KR og fleira.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.