Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. september 2020 06:00
Aksentije Milisic
Bayern Munchen íhugar að bjóða í Max Aarons
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen er að skoða það að leggja fram tilboð í hægri bakvörð Norwich, Max Aarons.

Aarons er 20 ára gamall og spilaði leiki fyrir Norwich í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð er liðið féll.

Mörg lið hafa áhuga á Aarons en Barcelona, AC Milan og Bayer Leverkusen hafa fylgst með þessum snögga bakverði.

Bayern hafði áhuga á bakverði Ajax, Sergino Dest, en hann virðist vera á leið til Barcelona svo nú hefur liðið ákveðið að snúa sér að Aarons.

Barcelona reyndi að fá Aarons á láni frá Norwich og gætu síðan keypt hann á 20 milljónir punda eftir lánssamninginn en Norwich neitaði því tilboði.
Athugasemdir
banner
banner